„Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ Smári Jökull Jónsson skrifar 9. júní 2026 21:00 Stefán Skúlason og David Jacoby héldu erindi á fundi um gervigreind og netglæpi í morgun. Vísir/Getty/Bjarni Fjöldi skráðra netbrota hjá lögreglunni fjórfaldaðist á milli áranna 2024 og 2025 og upphæð tjóna af völdum brotanna var tæplega sex hundruð milljónir króna á síðasta ári. Netöryggissérfræðingur segir hægt að nýta gervigreind á mjög slæman hátt.
Netöryggissérfræðingur hjá Syndis segir að nú séu uppi nýir tímar í netöryggismálum vegna gervigreindar. „Við eigum ekki að bíða eftir því að gervigreindin verði vopnavædd eða að netglæpamenn noti gervigreindina, því þeir eru þegar farnir að nota hana. Það er mjög auðvelt fyrir hvern sem er að gera mjög slæma hluti með gervigreind,“ segir David Jacoby frá Syndis sem hélt erindi á fundi Syndis og Arion banka í morgun. Orsökuðu tjón upp á 600 milljónir Samkvæmt tölum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu voru skráð netbrot 45 talsins árið 2024 og 182 á síðasta ári. Tilkynnt tjón í þessum brotum nam rúmum 190 milljónum árið 2024 og fór upp í tæplega 600 milljónir í fyrra. Stærsta einstaka brotið á síðasta ári orsakaði tjón upp á 114 milljónir. „Hraðinn er orðinn svo gríðarlega mikill í netsvikum hjá okkur í dag og öryggissvikum. Við erum farin að sjá hluti sem tóku marga mánuði komna niður í mínútur,“ segir Stefán Skúlason sérfræðingur öryggis hjá Arion banka. „Við verðum að vera með tortryggni gagnvart skilaboðum, gagnvart innskráningum og gagnvart fjárbeiðnum,“ bætir Stefán við. „Netglæpamenn munu nota þetta mjög hratt og með mikilli eyðileggingu“ Algengustu svikin samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni voru svokölluð fjárfestingasvik þar sem korta- eða bankaupplýsingum er stolið og notuð til innkaupa á netinu. David segir ábyrgðina að hluta liggja hjá almenningi. „Ef þið eruð ekki með fjölþátta auðkenningu á aðgöngunum ykkar skulið þið virkja hana. Ekki nota sama lykilorðið alls staðar, setjið upp allar öryggisuppfærslur sem koma.“ „Ég veit ekki hversu oft ég sé tölvur með Chrome þar sem stendur: Ný uppfærsla er í boði. Þú þarft að endurræsa vafrann til að setja upp nýju útgáfuna. Allt er þetta gríðarlega mikilvægt því við höfum ekki lengur þann munað að bíða því netglæpamenn munu nýta sér þetta mjög hratt, mjög fljótt og á mjög skaðlegan hátt,“ segir David að endingu.
Netglæpir Netöryggi Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Sjá meira