Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Smári Jökull Jónsson skrifar 9. júní 2026 13:16 Stefán Skúlason er sérfræðingur öryggis hjá Arion banka. Vísir/Bjarni/Getty Hraði í netsvikum hefur aukist gríðarlega undanfarið og hlutir sem áður tóku netþrjóta marga mánuði taka nú aðeins nokkrar mínútur að sögn sérfræðings öryggis hjá Arion banka. Almenningur þurfi að sýna tortryggni því glæpamenn treysti á að fólk bregðist við í hugsunarleysi.
Arion banki og íslenska netöryggisfyrirtækið Syndis boðuðu í morgun til fundar um öryggismál þar sem sérfræðingar fjölluðu um áhrif gervigreindar á netöryggi. Þar hélt David Jakoby frá Syndis erindi sem og Stefán Skúlason sérfræðingur öryggis hjá Arion Banka. Þarf tortryggni gagnvart skilaboðasendingum og fjárbeiðnum Stefán segir helstu áskoranirnar vera að átta sig á hvort netglæpir snúist að bankanum eða viðskiptavinunum. Þá hafi gervigreind breytt landslaginu töluvert. „Einna helst hraðinn, hraðinn er orðinn svo gríðarlega mikil í netsvikum hjá okkur í dag og ekki bara öryggissvikum. Við erum farin að sjá hluti sem tóku marga mánuði komna niður í mínútur,“ sagði Stefán að fundinum loknum í dag. „Skilaboðin sem eru allt um kring er að við þurfum að staldra við, við þurfum að átta okkur á að það sem er að koma til okkar er ekki endilega sannleikurinn. Við verðum að vera með tortryggni gagnvart skilaboðum, gagnvart innskráningum, gagnvart fjárbeiðnum og svo framvegis.“ Vísbendingar um svik í öllum skilaboðum Hann segir almenning þurfa að spyrja sig af hverju skilaboð séu að berast þar sem beðið er um upplýsingar. Daglega sjáist tilraunir til svika þar sem netglæpamenn sigla undir fölsku flaggi. „Það eru alltaf vísbendingar í nánast öllum skilaboðum og þær snúa yfirleitt að því að það þarf bara að gefa sér tíma og spyrja: Af hverju er ég að fá þetta?“ „Það er eiginlega aðalmálið af því að svikararnir keyra á að reyna að fá þig til að panikka og bregðast við, gera eitthvað í hugsunarleysi,“ sagði Stefán Skúlason, sérfræðingur öryggis hjá Arion banka.
Netöryggi Netglæpir Fjármálafyrirtæki Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Fleiri fréttir Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Sjá meira