Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Áróra L Davíðsdóttir skrifar 8. júní 2026 17:48 Hópur félaga í Sósíalistaflokki Íslands kærir fundarboð á aðalfund flokksins til Fyrirtækjaskrár. Hópur fólks sem samanstendur af tólf félögum í Sósíalistaflokki Íslands andmælir fundarboðun og þeim ákvörðunum sem teknar voru á aðalfundi flokksins sem fór fram um helgina, 6.–7. júní, og segir hann hafa verið skipulagðan í leynd.
Sara Stef. Hildardóttir, ein þeirra sem standa fyrir andmælunum, segir þetta vera brot á félagalögum í samtali við Vísi. „Það er félagafrelsi í landinu og fólk má vera skráð í þau félög sem það vill. Og ef þú ert gildur félagi þá áttu allan rétt á því að taka þátt í aðalfundi félagsins.“ Hún segir hluta hópsins, sem hafi hvorki sagt sig úr flokknum né verið rekinn úr honum, ekki hafa borist greiðsluseðill til þess að greiða félagsgjöldin. Aðra segir hún hafa borgað félagsgjöldin en þrátt fyrir það ekki fengið fundarboð. „Þannig að jafnvel þótt þú sért skráður í félagið, þá færðu ekki sendan greiðsluseðil og hjá þeim sem fá þó sendan greiðsluseðil og borga félagsgjöld er þeim samt ekki boðið á aðalfund.“ Hópurinn segir aðalfund flokksins sem fór fram um helgina vera ólögmætan og segja allar þær ákvarðanir og kjör í stjórnir sem þar fóru fram ógildar. Enginn þeirra hafi fengið fundarboð og fundinn hvergi hafa verið auglýstan á vef flokksins né samfélagsmiðlum, segir í andmælum félaganna sem fréttastofu bárust. Þó fengu einhverjir valdir félagar flokksins fundarboð í tölvupósti þann 27. maí síðastliðinn. Ekki var hægt að sækja fundinn með fjarfundarbúnaði sem hópurinn segir venju flokksins, sér í lagi þar sem flokkurinn býður fram á landsvísu. Fundurinn haldinn á Norðurlandi Fundurinn var haldinn 25 kílómetrum austur af Akureyri, að Stórutjarnarskóla, um helgina að sögn hópsins. Hann segir mikla leynd hafa hvílt yfir undirbúningi fundarins og gagnrýnir það að hann hafi verið haldinn í mikilli fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu þar sem meirihluti félaga býr. Sara segir hópinn hafa orðið var við fundinn á samfélagsmiðlum um helgina „Þá varð manni ljóst að þetta hafi verið framkvæmt með mikilli leynd og þá hefur greinilega verið algjört fjölmiðlabann meðal þeirra fáu félaga sem fengu fundarboð,“ segir hún. Kæra aðalfundinn til Fyrirtækjanefndar Sara segir þau knúin til þess að kæra fundinn til Fyrirtækjaskrár og segir hugsanlegt næsta skref að fara með málið lengra. „Sósíalistaflokkurinn er náttúrulega á styrkjum frá ríkinu og það væri hægt að færa rök fyrir því að þetta mætti tilkynna til dómsmálaráðuneytisins“ Hún segir félaga hafa sætt útilokun frá þátttöku í starfi flokksins frá því á aðalfundi flokksins í fyrra þar sem hópur sem stillti sér upp til höfuðs Gunnari Smára og fylkingu hans hlaut kjör í stjórn. Sara segir mörg hundruð manns hafa sagt sig úr flokknum eftir „yfirtökuna“. Aðspurð hvort þau gruni að fleiri en þeir sem skrifuðu undir andmælin séu í sömu sporum og hafi ekki fengið fundarboð þrátt fyrir að hafa ekki sagt sig úr flokknum svarar Sara játandi og segir: „En í öllu falli þá eru þetta ólöglegar tilfæringar hjá þeim miðað við lög landsins sem segja að það sé félagafrelsi. Fólk má skrá sig í félög og stjórnir félaga sem eru kjörnar lýðræðislega geta ekki farið svona fram gagnvart félögum.“ Sæþór Benjamín Randalsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins, vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu en boðar yfirlýsingu frá stjórn flokksins á næstu dögum.
Sósíalistaflokkurinn Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Innlent Fleiri fréttir Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Sjá meira