Handbolti

Stórt tap tryggði sæti í Meistara­deildinni

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Evrópudeildarmeistarar Melsungen munu fá sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili. 
Evrópudeildarmeistarar Melsungen munu fá sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili.  melsungen MT

Melsungen mun leika í Meistaradeildinni á næsta tímabili en það varð ljóst eftir tap liðsins gegn Fuchse Berlin í næstsíðustu umferð þýsku úrvalsdeildarinnar. Refirnir frá Berlín hafa nú tryggt sér 2. sæti deildarinnar.

Furðuleg staða var komin upp í þýsku úrvalsdeildinni þar sem Melsungen græddi meira á því að tapa þessum leik en að vinna hann.

Melsungen vann Evrópudeildina og fær því sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili en hefði getað misst það frá sér með sigri í kvöld.

Ef Melsungen hefði unnið leikinn hefði Fuchse Berlin verið í 3. sæti deildarinnar fyrir lokaumferðina. Ef Berlin hefði svo endað í 3. sæti en unnið Meistaradeildina um þarnæstu helgi, þá hefði Melsungen verið hent úr Meistaradeildinni og Berlin fengið sætið í staðinn.

Melsungen þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af því að það gerist, tapið í kvöld tryggði liðinu sæti í Meistaradeildinni. Nema ef Berlin tapar með ævintýralega miklum mun í lokaumferðinni.

Flensburg fer því svekkt á koddann, þrátt fyrir 36-31 sigur gegn Eisenach í kvöld. Flensburg er í 3. sætinu en þyrfti að vinna upp tveggja stiga og rúmlega fimmtíu marka mismun í lokaumferðinni.

Reynir Þór Stefánsson skoraði 3 mörk og Arnar Freyr Arnarsson skoraði 1 mark fyrir Melsungen í tapinu gegn Fuchse Berlin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×