Innlent

Reynsluboltinn í Hæsta­rétti hættur: „Þetta var komið gott“

Jakob Bjarnar skrifar
Ólafur Börkur hafði verið dómari við Hæstarétt í tæp 23 ár þegar hann hætti á mánudaginn.
Ólafur Börkur hafði verið dómari við Hæstarétt í tæp 23 ár þegar hann hætti á mánudaginn. Vísir/Vilhelm

Ólafur Börkur Þorvaldsson lét af embætti hæstaréttardómara þann 1. júní. Hann var skipaður dómari við réttinn 1. september 2003 og gengdi því embætti í tæp 23 ár. Hann var sá dómari Hæstaréttar sem hafði starfað lengst við réttinn.

Greint er frá starfslokum Ólafs Barkar á Instagramsíðu Hæstaréttar. Þar kemur meðal annars fram að hann hafi lokið embættisprófi frá Háskóla Íslands árið 1987 og að við skipun hafi hann verið dómstjóri Héraðsdóms Suðurlands.

„Þetta var komið gott,“ segir Ólafur Börkur í samtali við Vísi. Hann segist hafa slegið því upp hversu mörg mál hann hefur dæmt og sér hafi brugðið. 

„Allt of mikið. Ég hef nú trú á því að ég muni nýtast eitthvað áfram á sviði lögfræðinnar. Ég er að kenna við Háskólann í Reykjavík og svo kemur bara í ljós hvað ég mun gera meira af því og hvernig.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×