Áslaug kvaddi í hvítu útskriftardragtinni Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 3. júní 2026 12:07 Áslaug Arna kvaddi í hvítri dragt frá Sandro Paris. Vísir/Vilhelm Það hefur vart farið fram hjá lesendum að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir hætti fyrr í dag á Alþingi en áratugur er liðinn frá því hún tók fyrst sæti á þinginu. Áslaug kvaddi í krem-hvítri dragt sem er í senn sumarleg og sæt.
Ljósu litirnir klæða hana vel og virtist bjart yfir dömunni í þingsal þrátt fyrir miklar tilfinningar. Þessi litapalletta er einstaklega vinsæl á vorin og var elegant að para gyllt skart saman við hana eins og Áslaug gerði. Hún hefur oft ratað á lista yfir best klæddu þingmennina á þingsetningu og hefur greinilega fundið sinn persónulega stíl á undanförnum árum. Áslaug glæsileg í hvítri dragt.Vísir/Vilhelm Þá hafa mánuðirnir í New York eflaust veitt henni einhvern tískuinnblástur en stórborgin er þekkt fyrir einstaklega vel klædda borgarbúa. Í Instagram færslu sem Áslaug Arna birti af sér á háskólasvæði Columbia er hún í sama jakka og parar hann við sumarlegar stuttbuxur. Áslaug útskrifaðist jafnframt í þessari flottu dragt og þar sjást skemmtilegir hnappar neðst á skálmum buxnanna. View this post on Instagram A post shared by Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (@aslaugarna) View this post on Instagram A post shared by Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (@aslaugarna) Fötin eru frá franska tískumerkinu Sandro Paris. Buxurnar eru á 38 þúsund krónur og jakkinn 61400 krónur. Þessi dragt fæst hjá tískumerkinu Sandro Paris.Sandro Paris Hægt er að finna svipaðar dragtir víða, þar á meðal hjá sænsku keðjunni Ginu Tricot. Þar er hægt að finna blazer-jakka bæði í hvítu og í kremuðum lit á 12.895 krónur og buxur á 9195 krónur. Hvít dragt frá Ginu Tricot.Gina Tricot Sömuleiðis selur hraðtískurisinn Zara ýmsar dragtir í þessum en hátískumerkið Tom Ford selur kremaðan glæsi-jakka á um 615 þúsund krónur. Tom Ford jakkinn er í dýrari kantinum.Tom Ford
Tíska og hönnun Alþingi Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Áskorun Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Eitt allra krúttlegasta mót ársins Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Fleiri fréttir Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Sjá meira