Valin versti ljósmyndari heims Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 3. júní 2026 11:36 Blanche Mortemard, íbúi í París, varð fyrir valinu. Aðsend Blanche Mortemard, íbúi í París, hefur verið valin versti ljósmyndari heims af Icelandair. Hún mun nú ferðast um Ísland í tíu daga á vegum Icelandair í því skyni að sanna að jafnvel versti ljósmyndari geti tekið fallegar myndir af Íslandi.
Um er að ræða auglýsingaherferð á vegum Icelandair en alls sóttu tæplega 128 þúsund manns frá 178 löndum um. Í fréttatilkynningu segir að Blanche hafi í umsóknarferlinu sýnt fram á einstaka hæfileika við að taka endurtekið slæmar ljósmyndir, þar sem lítið fer fyrir fókus, myndbyggingu eða lýsingu. „Vinir og ættingjar hafa oft spurt mig hvers vegna ég tek svona glataðar myndir. Það er mjög ánægjulegt að geta loksins svarað því: Ég hef verið að æfa mig fyrir einmitt þetta verkefni,“ er haft eftir Blanche í tilkynningunni. „Ég hlakka til að ferðast um landið og upplifa náttúruna. Myndirnar sem ég hef séð eru mjög fjölbreyttar – jöklar, eldfjöll, svartar strendur og fossar en ég er ekki sannfærð um að þetta sé allt raunverulegt. Ég mun mynda af sama öryggi og atvinnuljósmyndari, án kunnáttunnar. Ef ég get gert náttúru Íslands góð skil í myndum, geta það allir!“ Herferðin hófst á hvatningu til gervigreindarfyrirtækja, samfélagsmiðla og myndabanka um allan heim að hætta að búa til myndir af Íslandi með hjálp gervigreindar. Til að sanna mál sitt ákváðu forsvarsmenn Icelandair að leita að versta ljósmyndara heims í tíu daga ljósmyndaferð um landið.
Icelandair Ljósmyndun Ferðalög Mest lesið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Áskorun Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Eitt allra krúttlegasta mót ársins Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Fleiri fréttir Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Sjá meira