Innlent

Brotist inn í Reykjabú

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Reykjabú er í Mosfellsbæ.
Reykjabú er í Mosfellsbæ. Vísir/Vilhelm

Brotist var inn í Reykjabú í Mosfellsbæ þar sem ræktaðir eru kalkúnar og kjúklingar og skemmdarverk unnin á býlinu aðfaranótt mánudags. Skilið var eftir manifesto, samskonar og skilið var eftir í innbroti í svínabú Stjörnugríss í upphafi maímánaðar.

Þetta herma heimildir fréttastofu. Hjördís Sigurbjartsdóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn segir í samtali við Vísi að innbrotið sé áþekkt og innbrotið hjá Stjörnugrís.

„Við vitum ekki hverjir voru að verki að svo stöddu, við erum bara komin á fullt að afla gagna. Rannsókn málsins er á algjöru frumstigi,“ segir Hjördís.

Voru mikil skemmdarverk á svæðinu, hvernig var aðkoman?

„Þetta var eitthvað minna rask heldur en í hinu, þó þetta sé alltaf huglægt en það er ljóst að þetta var þó tjón sem hlaust þarna af. Þetta eru mjög áþekk tilvik.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×