Enski boltinn

Ó­víst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
William Saliba og Declan Rice fagna saman Englandsmeistaratitli Arsenal en nú gæti bara annað þeirra verið með á heimsmeistaramótinu í sumar.
William Saliba og Declan Rice fagna saman Englandsmeistaratitli Arsenal en nú gæti bara annað þeirra verið með á heimsmeistaramótinu í sumar. Getty/Stuart MacFarlane

William Saliba, miðvörður Arsenal og franska landsliðsins, er mjög tæpur fyrir heimsmeistaramótið í fótbolta en hann meiddist á baki fyrir nokkrum vikum.

Hinn 25 ára gamli Saliba fór í myndatöku í dag til að kanna alvarleika meiðslanna en óttast er að hann þurfi langan tíma í hvíld og meðferð og muni því missa af heimsmeistaramótinu með franska landsliðinu. 

Það yrðu gríðarleg vonbrigði fyrir hann að missa af keppninni þar sem landslið hans er meðal þeirra sigurstranglegustu. Það yrði einnig mikið áfall fyrir Didier Deschamps og Les Bleus að missa einn besta varnarmann heims.

Aðrir varnarmenn sem Frakkar hafa kallað til eru Lucas Digne, Malo Gusto, Lucas Hernández, Theo Hernández, Ibrahima Konaté, Jules Koundé, Maxence Lacroix og Dayot Upamecano. Það vakti athygli að miðjumaður Real Madrid, Eduardo Camavinga, var ekki valinn.

Frakkar eru í I-riðli á heimsmeistaramótinu og munu mæta Senegal, Írak og Noregi.

Saliba spilaði 50 af 63 leikjum Arsenal í öllum keppnum á þessu tímabili og var lykilmaður í liðinu sem vann ensku úrvalsdeildina og komst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Arsenal tapaði í vítaspyrnukeppni gegn Paris Saint-Germain eftir 1-1 jafntefli í úrslitaleiknum í Búdapest.

En nú horfa Frakkar fram á að þurfa að stefna að heimsmeistaratitlinum án Saliba.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×