Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Sindri Sverrisson skrifar 31. maí 2026 15:55 Donni er lykilmaður í liði SAH sem nú spilar um danska meistaratitilinn. sa-h.dk Kristján Örn Kristjánsson, eða Donni, er kominn með lið SAH í úrslitaeinvígið um danska meistaratitilinn í handbolta í fyrsta sinn en mótherjinn þar er stórveldi Aalborg sem vann eftir æsispennandi leik í dag, 30-29.
Donni raðaði inn mörkum framhjá markverðinum magnaða Niklas Landin en það var hins vegar Landin sem á endanum tryggði heimamönnum sigur, með því að verja vítakast frá Færeyingnum Jóhan Hansen á síðustu sekúndu. Donni var markahæstur hjá SAH með sjö mörk úr átta tilraunum og liðið var grátlega nálægt því að vinna óvæntan sigur. Aalborg getur nú orðið meistari þegar liðin mætast á heimavelli SAH á fimmtudaginn en ef SAH vinnur mætast liðin í oddaleik. SAH var 16-14 yfir í hálfleik en Juri Knorr skoraði fyrsta mark seinni hálfleiks og heimamenn voru fljótir að jafna metin. Þeir komust svo fjórum mörkum yfir en Donni og félagar neituðu að gefast upp, jöfnuðu metin á nýjan leik og komust í 29-28 þegar aðeins tvær og hálf mínúta voru eftir. Aalborg skoraði hins vegar síðustu tvö mörkin, þar af sigurmarkið frá Mads Hoxer tuttugu sekúndum fyrir leikslok. Þýska landsliðsstjarnan Knorr endaði markahæst hjá Aalborg með átta mörk úr tólf tilraunum en Hoxer skoraði sjö mörk úr ellefu tilraunum.
Danski handboltinn Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Enski boltinn Fleiri fréttir Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Sjá meira