Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 29. maí 2026 16:20 Eliza Reid ræddi við Kelly Clarkson um sjálfsævisögu sína sem kom nýverið út í Bandaríkjunum. Eliza Reid, rithöfundur og fyrrverandi forsetafrú, var gestur í spjallþætti fjölmiðlakonunnar Kelly Clarkson í gær og ræddi þar um sjálfsævisögu sína sem kom nýverið út á ensku. Hún rifjaði upp eitt súrrealískasta augnablikið sem forsetafrú og hvernig hlutverkið gerði hana að bjartsýnari manneskju.
Eliza Reid gaf í apríl út sjálfsævisögu sína, Og svo varð ég forsetafrú, þar sem hún veitti lesendum innsýn inn í tíma sinn sem forsetafrú Íslands. Bókin kom í kjölfarið út í Kanada og Bandaríkjunum í enskri þýðingu Magneu J. Matthíasdóttur sem The First Lady Next Door. Bókakápan fyrir nýju bók Elizu. Síðustu vikur hefur Eliza verið í túr um Norður-Ameríku til að kynna bókina og ræddi af því tilefni við fjölmiðlakonuna Kelly Clarkson í gegnum fjarfundabúnað í spjallþættinum The Kelly Clarkson Show. „Næsti gestur okkar er upprunalega frá Kanada. Í háskóla varð hún ástfangin af manni frá Íslandi og flutti til heimalands hans þar sem þau stofnuðu fjölskyldu. Hún var útivinnandi móðir fjögurra barna og maðurinn hennar var prófessor,“ sagði Clarkson þegar hún kynnti Elizu inn í þáttinn. „Þau lifðu einföldu, lágstemmdu lífi þar til hann ákvað að bjóða sig fram til forseta og var kjörinn. Skyndilega var hún orðin forsetafrú og ferðaðist um heiminn frá Buckingham-höll til Hvíta hússins, ha? Þetta er allt í nýju sjálfsævisögu hennar,“ sagði Clarkson jafnframt. Clarkson nefndi svo að kjör Guðna til forseta hefði borið snögglega að. „Kosningabaráttan var sjö vikur að lengd þannig þetta gerðist hratt,“ sagði Eliza. „Guð minn góður, hvernig snerirðu þér í þessu? spurði Kelly þá. „Ég veit ekki hvernig ég gerði það. Ég held að allir sem eigi ung börn viti að maður þarf bara að halda áfram með smjörið. Börnin okkar voru á þessum tíma tveggja, fjögurra, sex og átta ára og það var enginn tími til að hugsa um þetta. Það eina sem ég gat gert var að gúggla hvernig ætti að hneigja sig því ég var að fara að hitta kónga og drottningar á einhverjum tímapunkti,“ sagði Eliza. „Ég vona að sveitauppeldið mitt í Kanada hjálpi mér í þessu hlutverki,“ hafi hún hugsað með sér. Símtal Biden í mömmu Elizu eftirminnilegt Eliza skrifar í bókinni um alls konar súrrealískar aðstæður sem hún upplifði sem forsetafrú og bað Clarkson hana um að gefa áhorfendum dæmi. „Eitt lítið dæmi var þegar við vorum boðin í Hvíta húsið þegar Joe Biden var forseti. Undir lok viðburðarins ákvað hann að hringja í mömmu mína á bóndabænum í Kanada sem var mjög skemmtilegt augnablik og mamma mín elskar að segja frá,“ sagði Eliza. Eliza kom einnig inn á það hvernig reynsla hennar sem forsetafrú gerði hana að bjartsýnari manneskju. „Ég var að segja þér sögu af bandarískum forseta en við fengum líka að kynnast venjulegu fólki: Manneskju sem stýrði kór í fjörutíu ár, konum sem saumuðu litlar húfur fyrir fyrirbura og fólki sem stýrði fjáröflunum fyrir ný heilbrigðistæki. Það gerði mig að bjartsýnari manneskju því ég vissi að við værum öll hérna að reyna að hjálpa hvoru öðru og reyna að sinna okkar hlutverki,“ sagði Eliza. „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt til að ýta hlutunum í rétta átt og það er það eina sem við getum gert. Mér finnst ég hafa notið mikill forréttinda að hafa orðið vitni að því,“ bætti hún við. „Og þú gerðir það allt á meðan þú ólst upp pínulítil börn, þú ert ofurkona,“ sagði Kelly Clarkson í kjölfarið.
Bókmenntir Guðni Th. Jóhannesson Forseti Íslands Bandaríkin Hollywood Tengdar fréttir Birti gamalt bréf til Guðna: „Íslanzka mín er ekki gott“ Í tilefni af Degi íslenskrar tungu deildi Eliza Reid, rithöfundur og fyrrverandi forsetafrú, mynd af bréfi sem hún sendi Guðna Th. Jóhannessyni, eiginmanni hennar og fyrrverandi forseta Íslands, ári eftir að þau hittust fyrst. 16. nóvember 2025 15:34 Mest lesið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Áskorun Eitt allra krúttlegasta mót ársins Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Fleiri fréttir Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Sjá meira
Birti gamalt bréf til Guðna: „Íslanzka mín er ekki gott“ Í tilefni af Degi íslenskrar tungu deildi Eliza Reid, rithöfundur og fyrrverandi forsetafrú, mynd af bréfi sem hún sendi Guðna Th. Jóhannessyni, eiginmanni hennar og fyrrverandi forseta Íslands, ári eftir að þau hittust fyrst. 16. nóvember 2025 15:34