Enski boltinn

Flottustu mörk tíma­bilsins í enska boltanum

Aron Guðmundsson skrifar
Dominic Solanke skoraði eitt af mörkum tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni fyrir Tottenham gegn Manchester City.
Dominic Solanke skoraði eitt af mörkum tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni fyrir Tottenham gegn Manchester City. Vísir/Getty

Alls voru 1045 mörk skoruð í ensku úrvalsdeildinni á nýafstöðnu tímabili þar sem að Arsenal stóð uppi sem Englandsmeistari í fyrsta sinn í tuttugu og tvö ár. Í þessari frétt má sjá flottustu mörk tímabilsins.

Það var lið Manchester City sem skoraði flestu mörkin á tímabilinu, alls 77 talsins en Arsenal kom skammt á eftir með 71 mark og Manchester United þar á eftir með 69 mörk. 

Fjölmörg stórglæsileg mörk litu dagsins ljós á tímabilinu sem var að renna sitt skeið. Hver man ekki eftir hælspyrnu sporðdrekamarki Dominic Solanke fyrir Tottenham eða aukaspyrnu Dominik Szoboszlai fyrir Liverpool gegn Arsenal. 

Þau mörk og fleiri til má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Flottustu mörk ensku úrvalsdeildarinnar tímabilið 2025/26. 

Klippa: Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum



Fleiri fréttir

Sjá meira


×