Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Kristján Már Unnarsson skrifar 21. maí 2026 22:32 Arnar Jökull Agnarsson er yfirmaður þjálfunar hjá Icelandair og þjálfunarflugstjóri á Airbus. Lýður Valberg Flug í flughermum er orðið svo raunverulegt að flugmenn gleyma því stundum að þeir séu í sýndarveruleika, segir yfirmaður þjálfunar Icelandair. Þar fagna menn því í dag að hafa náð hundrað þúsund flugtímum í flughermum.
Flughermarnir voru raunar fyrsta starfsemin sem Icelandair flutti í Hafnarfjörð árið 2015. Þjálfunarsetrið rekur núna fjóra herma, einn fyrir hverja þotutegund félagsins. „Við erum að fagna þeim áfanga núna að við erum búin að ná hundrað þúsund þjálfunarstundum hérna í þjálfunarsetri Icelandair í Hafnarfirði,“ segir Ásgeir Bjarni Lárusson, framkvæmdastjóri CAE Icelandair Flight Training, en svo heitir félagið um flughermana, sem er í eigu Icelandair og kanadíska félagsins CAE. Ásgeir Bjarni Lárusson, framkvæmdastjóri CAE Icelandair Flight Training. Fyrir aftan er nýi Airbus-flughermirinn.Lýður Valberg Nýjasti flughermirinn er fyrir Airbus, kostaði um einn og hálfan milljarð króna, og er lykiltæki í að flytja flugmenn Icelandair yfir á nýju þoturnar. „Náttúrulega allt annað fyrir okkur að geta gert þetta allt héðan að heiman. Svona ferli að þjálfa einn flugmann tekur í kringum þrjá mánuði, heildarferlið, þannig að þetta skiptir gríðarlega miklu máli,“ segir Arnar Jökull Agnarsson, þjálfunarflugstjóri á Airbus og yfirmaður þjálfunar hjá Icelandair. Í frétt Sýnar sjást Arnar og Ásgeir æfa aðflug og lendingu á Akureyri. Við tökum eftir því hvað bæði landslagið og húsin í bænum eru raunveruleg í þessum sýndarveruleika. Lent á Akureyrarflugvelli í flughermi.Lýður Valberg „Í rauninni eru líklega tölvuleikjaframleiðendur sem áttu þátt í þessu. En þetta er orðið alveg ótrúlega gott sko,“ segir Arnar Jökull. Og svo hristist flughermirinn og hreyfist upp og niður. „Þá hreinlega gleymir maður því bara að maður sé í flughermi. Þetta er það líkt sko. Bæði þetta líkir það vel eftir hreyfingum og við getum búið til ókyrrð og annað. Þannig að við getum sett upp í rauninni alveg ótrúlegustu hluti í svona tæki,“ segir þjálfunarflugstjórinn hér í sjónvarpsfrétt Sýnar: Hver flugtími í hermi kostar um níutíuþúsund krónur og hluti þeirra er seldur út. „Það er sirka þrjátíu prósent af þessum hundrað þúsund stundum hafa verið til flugfélaga og flugskóla erlendis,“ segir Ásgeir Bjarni. Við sjáum flugmenn frá færeyska félaginu Farcargo fara í þjálfun í 757-flughermi. Ásgeir segir erlendar áhafnir hafa skilað tekjum sem munar um á þessum árum. „Yfir þrjá milljarða, sem dæmi, í gjaldeyristekjum fyrir landið þar sem að þetta eru áhafnir sem koma hérna erlendis frá, gista á hótelum, borða á veitingastöðum.“ Flughermir fyrir Boeing 737 max-þotur.Lýður Valberg Í þjálfunarsetrinu eru einnig flugvélaskrokkar með farþegarými til að þjálfa flugfreyjur og flugþjóna í neyðarviðbrögðum, þar á meðal reykköfun. Hér leyfist flugmönnum að gera mistök? „Hér eigum við að læra af mistökunum. Það er svona hugmyndin,“ segir Arnar Jökull. Þeir félagarnir segja skipta máli fyrir Icelandair að hafa þann sveigjanleika sem fylgir því að geta skipulagt þjálfun flugmanna í eigin flughermum. „Við erum með gríðarlega metnaðarfullt starf þegar kemur að þessu, enda held ég að allir geri sér grein fyrir því að það er risaatriði að flugmenn séu vel þjálfaðir,“ segir yfirmaður þjálfunar hjá Icelandair.
Icelandair Flug Hafnarfjörður Airbus Boeing Tengdar fréttir Icelandair kaupir Airbus flughermi Icelandair hefur samið við fyrirtækið CAE um kaup á flughermi fyrir Airbus A321 flugvélar sem félagið tekur í notkun síðar á árinu. Flughermirinn verður settur upp í þjálfunarsetri Icelandair í Hafnarfirði seinni hluta árs 2025 og verður rekinn af CAE Icelandair Flight Training. 26. júní 2024 14:48 Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi Ein minnsta starfsstöð flugfélagsins Air Atlanta er á Heathrow-flugvelli í London, þar sem þjálfun flugmanna fer fram. Þar er félagið með sinn eigin Boeing 747-flughermi. 6. apríl 2026 15:00 Flugmenn í þjálfun keyptu fimm þúsund hótelnætur Á sama tíma tíma og flugheimurinn er í djúpri lægð vegna kórónufaraldursins hefur þjálfun erlendra flugmanna í flughermum Icelandair stóraukist. Þannig sendu erlend flugfélög fimm þúsund flugmenn í þjálfun til Hafnarfjarðar í fyrra. 7. febrúar 2021 16:55 Flugmenn Icelandair búa sig undir að fljúga Maxinum á ný Flugmenn Icelandair gangast núna undir endurþjálfun á Boeing 737 Max-þotur eftir að Flugöryggisstofnun Evrópu aflétti nærri tveggja ára flugbanni í síðustu viku. Félagið hyggst byrja að ferja þoturnar aftur til Íslands í kringum næstu helgi. 1. febrúar 2021 22:15 Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira
Icelandair kaupir Airbus flughermi Icelandair hefur samið við fyrirtækið CAE um kaup á flughermi fyrir Airbus A321 flugvélar sem félagið tekur í notkun síðar á árinu. Flughermirinn verður settur upp í þjálfunarsetri Icelandair í Hafnarfirði seinni hluta árs 2025 og verður rekinn af CAE Icelandair Flight Training. 26. júní 2024 14:48
Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi Ein minnsta starfsstöð flugfélagsins Air Atlanta er á Heathrow-flugvelli í London, þar sem þjálfun flugmanna fer fram. Þar er félagið með sinn eigin Boeing 747-flughermi. 6. apríl 2026 15:00
Flugmenn í þjálfun keyptu fimm þúsund hótelnætur Á sama tíma tíma og flugheimurinn er í djúpri lægð vegna kórónufaraldursins hefur þjálfun erlendra flugmanna í flughermum Icelandair stóraukist. Þannig sendu erlend flugfélög fimm þúsund flugmenn í þjálfun til Hafnarfjarðar í fyrra. 7. febrúar 2021 16:55
Flugmenn Icelandair búa sig undir að fljúga Maxinum á ný Flugmenn Icelandair gangast núna undir endurþjálfun á Boeing 737 Max-þotur eftir að Flugöryggisstofnun Evrópu aflétti nærri tveggja ára flugbanni í síðustu viku. Félagið hyggst byrja að ferja þoturnar aftur til Íslands í kringum næstu helgi. 1. febrúar 2021 22:15