Liverpool gæti komið Brighton í Meistaradeild Evrópu Sindri Sverrisson skrifar 21. maí 2026 09:01 Sigur Aston Villa í Evrópudeildinni opnar á möguleikann á að sex ensk lið spili í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð, rétt eins og í vetur. Getty/Harry Murphy Sigur Aston Villa í Evrópudeildinni í fótbolta hefur ansi áhugaverð áhrif á lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á sunnudaginn. Þar ræðst hvort það verða fimm eða sex ensk lið í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Arsenal, Manchester City, Manchester United og Aston Villa verða í Meistaradeildinni í haust og mjög líklega Liverpool einnig. Brighton eða Bournemouth bætist í hópinn ef og aðeins ef Villa endar í 5. sæti á sunnudaginn. Einfalt mál: Ef Aston Villa endar í 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar þá fer liðið í 6. sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Ef Villa endar í 4. sæti þá fær Sporting Lissabon sæti í Meistaradeildinni. Fimm efstu liðin í ensku úrvalsdeildinni eiga öruggt sæti í Meistaradeildinni og er Liverpool í 5. sætinu, þremur stigum fyrir ofan Bournemouth og með sex mörkum betri markatölu. Bournemouth þyrfti því að vinna Nottingham Forest á útivelli og Liverpool að tapa gegn Brentford á heimavelli, með samtals sex marka sveiflu, til að Liverpool færi niður í 6. sæti og missti af sæti í Meistaradeild Evrópu. Standings provided by Sofascore Ef Liverpool vinnur hins vegar Brentford, og Villa tapar á útivelli gegn Manchester City, kemst Liverpool upp í 4. sæti og sendir Villa niður í 5. sæti. Þetta myndi gera að verkum að liðið í 6. sæti, þá Bournemouth eða Brighton, fengi sæti í Meistaradeild Evrópu. Sigri í Evrópudeildinni fylgir nefnilega sæti í Meistaradeild Evrópu en ef sigurvegarinn endar hvort sem er í hópi fjögurra efstu liða úrvalsdeildarinnar, sem alltaf eru örugg sæti í Meistaradeildinni, þá fær annað land „aukasætið“. Hið sama gildir ef Arsenal vinnur Meistaradeildina 30. maí. En af því að England er líka þegar búið að fá „aukasæti“ með árangri enskra liða í Evrópukeppnum í vetur, fimmta sætið, þá mun sjötta enska liðið fá að fara í Meistaradeildina ef Villa endar í 5. sætinu. Ef Villa heldur hins vegar 4. sæti þá munu aðeins fimm lið frá Englandi fara í Meistaradeild Evrópu og „aukasætið“ í keppninni fara til Sporting Lissabon sem er næst inn af styrkleikalista UEFA. Enski boltinn Liverpool FC Brighton & Hove Albion AFC Bournemouth Aston Villa FC Tengdar fréttir Sjáðu Villa fagna titli: Rikki G missti sig yfir draumamörkum Aston Villa varð í gærkvöld Evrópudeildarmeistari með frábærum 3-0 sigri gegn Freiburg í úrslitaleik í Istanbúl. Mörkin mögnuðu úr leiknum og meistarafögnuðinn má sjá á Vísi. 21. maí 2026 08:31 Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Fleiri fréttir Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Sjá meira
Arsenal, Manchester City, Manchester United og Aston Villa verða í Meistaradeildinni í haust og mjög líklega Liverpool einnig. Brighton eða Bournemouth bætist í hópinn ef og aðeins ef Villa endar í 5. sæti á sunnudaginn. Einfalt mál: Ef Aston Villa endar í 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar þá fer liðið í 6. sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Ef Villa endar í 4. sæti þá fær Sporting Lissabon sæti í Meistaradeildinni. Fimm efstu liðin í ensku úrvalsdeildinni eiga öruggt sæti í Meistaradeildinni og er Liverpool í 5. sætinu, þremur stigum fyrir ofan Bournemouth og með sex mörkum betri markatölu. Bournemouth þyrfti því að vinna Nottingham Forest á útivelli og Liverpool að tapa gegn Brentford á heimavelli, með samtals sex marka sveiflu, til að Liverpool færi niður í 6. sæti og missti af sæti í Meistaradeild Evrópu. Standings provided by Sofascore Ef Liverpool vinnur hins vegar Brentford, og Villa tapar á útivelli gegn Manchester City, kemst Liverpool upp í 4. sæti og sendir Villa niður í 5. sæti. Þetta myndi gera að verkum að liðið í 6. sæti, þá Bournemouth eða Brighton, fengi sæti í Meistaradeild Evrópu. Sigri í Evrópudeildinni fylgir nefnilega sæti í Meistaradeild Evrópu en ef sigurvegarinn endar hvort sem er í hópi fjögurra efstu liða úrvalsdeildarinnar, sem alltaf eru örugg sæti í Meistaradeildinni, þá fær annað land „aukasætið“. Hið sama gildir ef Arsenal vinnur Meistaradeildina 30. maí. En af því að England er líka þegar búið að fá „aukasæti“ með árangri enskra liða í Evrópukeppnum í vetur, fimmta sætið, þá mun sjötta enska liðið fá að fara í Meistaradeildina ef Villa endar í 5. sætinu. Ef Villa heldur hins vegar 4. sæti þá munu aðeins fimm lið frá Englandi fara í Meistaradeild Evrópu og „aukasætið“ í keppninni fara til Sporting Lissabon sem er næst inn af styrkleikalista UEFA.
Einfalt mál: Ef Aston Villa endar í 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar þá fer liðið í 6. sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Ef Villa endar í 4. sæti þá fær Sporting Lissabon sæti í Meistaradeildinni.
Enski boltinn Liverpool FC Brighton & Hove Albion AFC Bournemouth Aston Villa FC Tengdar fréttir Sjáðu Villa fagna titli: Rikki G missti sig yfir draumamörkum Aston Villa varð í gærkvöld Evrópudeildarmeistari með frábærum 3-0 sigri gegn Freiburg í úrslitaleik í Istanbúl. Mörkin mögnuðu úr leiknum og meistarafögnuðinn má sjá á Vísi. 21. maí 2026 08:31 Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Fleiri fréttir Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Sjá meira
Sjáðu Villa fagna titli: Rikki G missti sig yfir draumamörkum Aston Villa varð í gærkvöld Evrópudeildarmeistari með frábærum 3-0 sigri gegn Freiburg í úrslitaleik í Istanbúl. Mörkin mögnuðu úr leiknum og meistarafögnuðinn má sjá á Vísi. 21. maí 2026 08:31