Látinn eyða myndskeiði: „Ekki standa þarna eins og gungur, hjálpið manninum“ Árni Sæberg skrifar 18. maí 2026 14:39 Ísak segir að atvik málsins hafi hafist við tréð fyrir miðju myndarinnar og maðurinn hafi hlaupið til hægri og alla leið út úr kirkjugarðinum. Ísak Berglindarson Maður sem varð vitni að afskiptum lögreglu af manni við Keflavíkurkirkjugarð í morgun, sem endaði með því að kviknaði í manninum, segir beitingu lögreglu á rafvarnarvopni fáránlega, þar sem maðurinn hafi verið búinn að hella á sig íkveikivökva. Þá hafi lögregla neytt hann til að eyða myndskeiði af atvikinu með hótunum um handtöku.
Í fréttatilkynningu frá Lögreglunni á Suðurnesjum frá því í morgun sagði að embættinu hefði borist tilkynning klukkan 09:10 um einstakling í ójafnvægi í Reykjanesbæ. Þegar lögregla kom á vettvang hefði viðkomandi verið ógnandi, æstur og ekki farið að fyrirmælum lögreglunnar. „Viðkomandi hafði hellt yfir sig bensíni og hótaði að kveikja í sér. Lögregla beitti rafvarnarvopni til að yfirbuga viðkomandi, sem virtist ekki skila árangri. Viðkomandi nær þá að bera eld að sér með kveikjara sem hann hafði meðferðis. Hann var færður á sjúkrahús til aðhlynningar með brunasár víða.“ Lét NEL vita Ísak Berglindarson varð vitni að atvikinu í morgun og hafði samband við fjölmiðla og Nefnd um eftirlit með störfum lögreglu áður en tilkynning lögreglu barst. Þegar blaðamaður ræddi við hann í morgun sagðist hann viss um að kviknað í manninum eftir að hann var skotinn með rafbyssu, enda hafi hann verið þakinn íkveikivökva. „Maðurinn byrjar náttúrulega að öskra, alveg brjálaður, hleypur um, rúllar sér í grasinu og nær að slökkva í sér. Ég öskra á lögregluna, hvað eru þið að gera? Gerið eitthvað, ekki standa þarna eins og gungur, hjálpið manninum. Það slökknar í manninum og þá handtaka þeir hann.“ Breytir engu hvort hann hafi verið með kveikjara Blaðamaður bar tilkynningu lögreglu undir hann og hann segist ekki geta fullyrt að maðurinn hafi ekki borið eld að sér sjálfur með kveikjara, enda hafi hann verið í nokkurri fjarlægð frá vettvangi. Atvik málsins urði í og við Keflavíkurkirkjugarð.Ísak Berglindarson „En segjum að hann hafi kveikt í sér, það breytir því ekki að lögreglan er alveg vanhæf þegar hún notar rafbyssu í þessum kringumstæðum yfir höfuð. Hvort sem hann var búinn að hella vökva á sig eða ekki, af því að maðurinn var ekki vopnaður. Lögreglan á ekki að nota rafbyssu nema maðurinn sé vopnaður og mjög hættulegur lögreglunni. Þeir gátu alveg yfirbugað hann án þess að nota rafbyssu.“ Neyddur til að eyða myndskeiði Þá segir hann að hann hafi tekið atvikið upp á myndskeið með símanum sínum, sem hefði getað varpað ljósi á það hvort kviknað hafi í manninum út frá kveikjara eða rafvarnarvopni. Lögreglumenn á vettvangi hafi neytt hann til þess að eyða myndskeiðinu, gegn hótun um handtöku. „Hann var alveg svolítið ógnandi, hann hótaði að handtaka mig og svona. Ég ákvað að hlýða honum, ég nennti ekki einhverju svona bulli en ég sé eftir því núna.“ Upphaflega hafi lögreglumaður tekið síma hans af honum en hann þá bent á að það sé ekki heimilt án úrskurðar. Lögreglumaðurinn hafi umsvifalaust afhent honum símann aftur en séð til þess að hann eyddi myndskeiðinu og það alveg, ekki bara með því að færa það í ruslið. Þá hafi lögregla ekkert reynt að ná í hann eftir afskipti af honum á vettvangi, til þess að varpa frekara ljósi á málavexti. Vísir hefur hvorki náð tali af lögreglustjóra né yfirlögregluþjóni á Suðurnesjum.
Lögreglumál Lögreglan Rafbyssur Reykjanesbær Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Fleiri fréttir Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Sjá meira