Haaland verður víkingur í teiknimynd Sindri Sverrisson skrifar 18. maí 2026 11:32 Erling Haaland þykir víkingslegur í útliti og fær einmitt að tala fyrir karakter sem er víkingur og heitir Haaland. Getty Norska fótboltastjarnan Erling Haaland hefur ákveðið að láta reyna á leikhæfileika sína því hann talar inn á norska teiknimynd sem frumsýnd verður um næstu jól.
Teiknimyndin ber heitið „ViQueens“ og er úr smiðju hjónanna Harald og Veslemøy Ruud Zwart og dóttur þeirra, Stellu Zwart. Þar mun Manchester City-framherjinn fá að tala fyrir víking sem mun einmitt heita Haaland. „Erling er orðinn að nútíma víkingaímynd á alþjóðavettvangi – óttalaus, kraftmikill og ótvírætt norskur. Þegar við ákváðum að gera kvikmynd einmitt frá þessum tíma þá gátum við ekki fengið betri persónu. Við látum hann leika sjálfan sig, goðsagnakennda víkinginn sem er þekktur sem „Haaland“,“ segir framleiðandinn Veslemøy Ruud Zwart í fréttatilkynningu. „Ég hef líka verið mikill aðdáandi hans lengi, þetta er einfaldlega alveg frábært. Í myndinni munum við líka sjá hvernig Haaland uppgötvar að hann hefur hæfileika í fótbolta,“ segir Zwart. Haaland, sem varð bikarmeistari með City um helgina, spilar næst annað kvöld þegar City mætir Bournemouth í næstsíðasta leik sínum í ensku úrvalsdeildinni. Ef Arsenal vinnur Burnley í kvöld er ljóst að City verður að vinna á morgun því annars verður Englandsmeistaratitillinn í höfn hjá Arsenal-mönnum. Eftir lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar um næstu helgi tekur svo HM fljótlega við hjá Haaland sem er á leið á sitt fyrsta stórmót með norska landsliðinu.
Enski boltinn Manchester City Tengdar fréttir Sjáðu markið hjá Semeyno og bikarlyftinguna Manchester City varð í dag bikarmeistari í áttunda sinn eftir 1-0 sigur á Chelsea á Wembley. Antoine Semenyo skoraði eina mark leiksins með hælspyrnu. 16. maí 2026 20:45 Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Fimmtán leikmenn meiddir: Er lengra landsleikjahlé betra eða verra? Sport Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Körfubolti „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Handbolti Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Fótbolti Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Fótbolti Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ Fótbolti KR vann erkifjendurna sannfærandi Körfubolti Fleiri fréttir Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Sjá meira
Sjáðu markið hjá Semeyno og bikarlyftinguna Manchester City varð í dag bikarmeistari í áttunda sinn eftir 1-0 sigur á Chelsea á Wembley. Antoine Semenyo skoraði eina mark leiksins með hælspyrnu. 16. maí 2026 20:45