Mesti fjöldi aftaka á heimsvísu í 44 ár Lovísa Arnardóttir skrifar 18. maí 2026 07:58 Myndin er tekin á mótmælum gegn dauðarefsingunni í Kúala Lúmpúr í Malasíu í fyrra. Þar mótmælti hópur fólks aftöku Pannir Selvam Pranthaman sem var dæmdur til dauða fyrir að hafa smyglað vímuefnum í Singapúr árið 2017. Hann var tekinn af lífi í október. Vísir/EPA Ekki hafa verið fleiri aftökur í heiminum í 44 ár, eða frá árinu 1981. Á síðasta ári voru 2.707 einstaklingar teknir af lífi í sautján löndum. Þetta kemur fram í nýútkominni árlegri skýrslu Amnesty International um beitingu dauðarefsingarinnar.
Í tilkynningu frá Amnesty á Íslandi segir að þessa aukningu megi rekja til fárra ríkisstjórna. Írönsk stjórnvöld beri mesta ábyrgð á þessari miklu aukningu. Þar voru að minnsta kosti 2.159 einstaklingar teknir af lífi, rúmlega tvöfalt fleiri en árið 2024. Í Sádi-Arabíu fjölgaði aftökum einnig verulega en þar fóru að minnsta kosti 356 aftökur fram, meðal annars með umfangsmikilli beitingu dauðarefsingar vegna brota tengdum vímuefnum. Þrefaldaðist í Kúveit Þá kemur fram í tilkynningu að í Kúveit þrefaldaðist fjöldi aftaka á milli ára (úr 6 í 17) á meðan þær tvöfölduðust í Egyptalandi (úr 13 í 23), í Singapúr fóru þær úr níu í sautján og í Bandaríkjunum úr 25 í 47. Samkvæmt skýrslu Amnesty um aftökur fjölgaði þeim um 78 prósent miðað við árið 2024 þegar að minnsta kosti 1.518 aftökur voru skráðar. Tölurnar fyrir árið 2025 innihalda ekki þær þúsundir aftaka sem taldar eru hafa átt sér stað í Kína, þar sem talið er að flestar aftökur í heiminum fari fram. „Fámennur hópur einangraðra ríkja ber ábyrgð á þessari uggvænlegu aukningu í beitingu dauðarefsingarinnar en þau eru staðráðin í að framkvæma aftökur hvað sem það kostar, þrátt fyrir áframhaldandi þróun á heimsvísu í átt að afnámi dauðarefsingarinnar. Kína, Íran, Norður-Kórea, Sádi-Arabía, Jemen, Kúveit, Singapúr og Bandaríkin eru í minnihlutahópi blygðunarlausra ríkja sem beita dauðarefsingunni til að ala á ótta, bæla niður andóf og sýna vald ríkisvaldsins yfir fólki í viðkvæmri stöðu og jaðarsettum hópum,“ er haft eftir Agnès Callamard, aðalframkvæmdastjóri Amnesty International, í tilkynningu um útgáfu skýrslunnar. „Stríðið gegn fíkniefnum“ Þar segir einnig að hörð refsistefna í „stríði gegn fíkniefnum“ hafi orðið til þess að dauðarefsingunni var beitt í auknum mæli. Þetta endurspeglist í fjölda aftaka, en nær helmingur allra þekktra aftaka árið 2025 (1.257 aftökur, eða 46%) voru framkvæmdar vegna brota tengdum vímuefnum í Kína (+), Íran (998), Kúveit (2), Sádi-Arabíu (240) og Singapúr (15). Í tilkynningu kemur jafnframt fram að í Alsír, Kúveit og Maldíveyjum hafi í fyrra verið unnið að lagabreytingum til að útvíkka heimild fyrir beitingu dauðarefsingarinnar þannig að þær næðu einnig til brota tengdum vímuefnum. Stjórnvöld í Búrkína Fasó samþykktu drög að frumvarpi sem felur í sér endurupptöku dauðarefsingarinnar fyrir brot á borð við „landráð“, „hryðjuverkastarfsemi“ og „njósnir“. Yfirvöld í Tsjad settu jafnframt á fót nefnd til að endurskoða málefni sem tengjast dauðarefsingunni, þar á meðal mögulega endurupptöku hennar. Þrátt fyrir mikla fjölgun aftaka eru ríki sem beita dauðarefsingunni enn í miklum minnihluta. Fjöldi ríkja sem framkvæmdu aftökur voru 17. Kína, Egyptaland, Íran, Írak, Norður-Kórea, Sádi-Arabía, Sómalía, Bandaríkin, Víetnam og Jemen eru þau tíu ríki sem vitað er að framkvæmdu aftökur á hverju ári undanfarin fimm ár. Þessi ríki hafa jafnframt ítrekað sýnt alþjóðlegum mannréttindalögum og viðmiðum algjört virðingarleysi. Hófu aftökur á ný Japan, Suður-Súdan, Taívan og Sameinuðu arabísku furstadæmin voru þau ríki sem hófu aftökur á ný árið 2025. Engar aftökur eða dauðadómar voru skráðir í Evrópu eða Mið-Asíu. Sautjánda árið í röð voru Bandaríkin eina ríkið í Norður- og Suður-Ameríku sem framkvæmdi aftökur, en nær helmingur allra aftaka þar í landi fór fram í Flórída. Í Afríkuríkjum sunnan Sahara voru aftökur einungis framkvæmdar í Sómalíu og Suður-Súdan. Afganistan var eina ríkið í Suður-Asíu sem framkvæmdi aftökur en í Suðaustur-Asíu er einungis vitað til þess að Singapúr og Víetnam hafi framkvæmt aftökur. Tonga er eina ríkið á Kyrrahafssvæðinu með dauðarefsinguna í lögum. „Það er kominn tími til að ríki sem enn framkvæma aftökur fylgi fordæmi meirihluta ríkja heims og sjái til þess að þessi viðurstyggilega refsing heyri sögunni til. Dauðarefsingin gerir samfélög ekki öruggari. Þvert á móti er hún óafturkræf árás á mannlega reisn, sem byggir á ótta og lítilsvirðir alþjóðleg mannréttindalög,“ segir Agnès. Í tilkynningu segir að þegar Amnesty hóf baráttu sína gegn dauðarefsingu hafi aðeins sextán ríki verið búin að afnema hana, í dag séu þau 113 sem hafi annaðhvort afnumið dauðarefsinguna í lögum eða framkvæmd. 113 ríki sem ekki styðja dauðarefsingu Þá kemur fram að þrátt fyrir fjölgun aftakna hafi nokkur ríki stigið jákvæð skref í fyrra. Í Víetnam hafi yfirvöld til dæmis afnumið dauðarefsinguna fyrir átta tegundir brota, þar á meðal fyrir vímuefnaflutninga, mútur og fjárdrátt. Gambía hafi að sama skapi afnumið dauðarefsinguna fyrir morð, landráð og önnur brot gegn ríkinu. Þá hafi það verið mikil tímamót þegar ríkisstjóri Alabama, Kay Ivey, náðaði Rocky Myers en það var í fyrsta sinn sem svartur einstaklingur á dauðadeild í ríkinu er náðaður. Þá kemur fram í tilkynningu Amnesty að í Líbanon og Nígeríu hafi verið lögð fram frumvörp um afnám dauðarefsingarinnar og stjórnlagadómstóllinn í Kirgistan úrskurðað að tilraunir til að endurupptöku dauðarefsingarinnar brytu gegn stjórnarskrá landsins. Hægt er að kynna sér skýrslu Amnesty um aftökur árið 2025 hér.
Dauðarefsingar Bandaríkin Íran Maldíveyjar Japan Suður-Súdan Taívan Sameinuðu arabísku furstadæmin Sómalía Víetnam Líbanon Nígería Gambía Afganistan Singapúr Írak Norður-Kórea Sádi-Arabía Jemen Búrkína Fasó Fíkn Malasía Mest lesið Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Fleiri fréttir Hætta við að bjarga gammablossasjónauka Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Hópur tengdur rétttrúnaðarkirkjunni reyndi að komast til áhrifa í Danska þjóðarflokkinum Hótar þeim hörmungum sem eiga í viðskiptum við Íran Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Kærastinn var á staðnum Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur Lentu geimflaug í fyrsta sinn Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Sjá meira