„Rosalega þreytandi stef“ Ester Ósk Árnadóttir skrifar 17. maí 2026 19:22 Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs Akureyri. Vísir/Ernir Ég er mest svekktur hvernig við mætum út í leikinn í fyrri hálfleik. Mér fannst við ömurlegir. Hugarfarið ekki gott og engin að taka ábyrgð á neinu sem gerðist, sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson eftir 1-2 tap á móti ÍA á heimavelli í dag. „
Við fórum mjög langt frá leikplaninu okkar sem við erum óvanir að gera. Ég er mjög svekktur að ég hafi ekki náð að gíra liðið betur upp í þennan fyrri hálfleik.“ Sigurður var mjög ósáttur við leik sinna manna sérstaklega í mörkunum sem þeir eru að fá á sig. „Við byrjum seinni hálfleikinn sterkt en svo er það bara þannig að mér finnst við alltof oft vera í færi eða séns öðru megin og svo fáum við mark í andlitið hinum megin sem er orðið rosalega þreytandi stef sem við þurfum að reyna að breyta. Ég verð bara að gera töluvert betur í því að reyna að breyta þessu.“ Spurður að því hvað sé að valda stóð ekki á svörum. „Við erum bara illa staðsettir og linir, fókusinn hjá okkur er alltof lítill og ég held bara að ég sé ekki búin að koma þessu nægjanlega vel til skila hvernig ég vill að þetta sé gert og það er rosalega svekkjandi. Erfitt að kyngja því.“ Þór fékk mark á sig eftir tvær mínútur í seinni hálfleik þar sem liðið hafði verið í sókn stuttu áður. „Það var bara mjög hræðilegt, það sama og gerðist í leiknum á móti Víking í síðustu umferð. Þetta er bara að gerast alltof oft að við erum í færi en fáum svo bara mark á okkur og það er af því við erum illa staðsettir og bregðumst illa við. Það er nákvæmlega það sama og gerist þegar þeir fá vítið, við að klára sóknina illa og endum að fá víti í andlitið.“ „Við verðum bara að verða miklu betri. Það voru jákvæðir hlutir að gerast og mér fannst við vera í mómentinu að taka þennan leik og vinna hann en á meðan við sýnum ekki betra hugarfar en þetta, vinnum ekki návígi og fyrstu bolta að þá vinnum við enga leiki. Það er bara eins gott að við förum að drullast til að gera það því að ef við förum ekki að gera það þá töpum við bara öllum leikjum.“ Þór kom sterkara inn í seinni hálfleikinn, skoruðu mark og pressuðu ÍA vel seinni hluta hálfleiksins. „Þeir greinilega þurftu einhverja gusu á sig til að vakna en að sjálfsögðu fengum við mark beint í andlitið. Alltof mikið af sénsum og færum sem við nýtum ekki. Við þurfum að fara að skora fleiri mörk og skora fleiri mörk á æfingum til að koma því inn í leiki þannig að ég þarf bara að þjálfa liðið betur.“
Þór Akureyri Besta deild karla Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Fleiri fréttir Russell vann sprettinn í þriðja sinn Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Messi sektaður fyrir að slá andstæðing „Auðvitað var auka hjartsláttur“ ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur Sinner missir af Opna bandaríska United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Strákarnir réðu ekki við Finnana Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Ísland tapaði fyrir Portúgal Óliver heldur áfram að slá í gegn Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Semur lag fyrir frjálsíþróttamót sem haldið verður annað hvert ár Kylfingarnir „kjöt á hlaðborði“ í Kanada Sjá meira