„Auðvitað með ólíkindum að þetta fái að viðgangast“ Smári Jökull Jónsson skrifar 15. maí 2026 13:01 Viðar Jensson er verkefnastjóri tóbaksvarna hjá embætti landlæknis. Vísir/Egill/Lýður Valberg Verkefnastjóri tóbaksvarna hjá embætti landslæknis segir skýrslu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar um notkun nikótínpúða tímabæra. Nauðsynlega þurfi regluverk hér landi sem sem banni fyrirtækjum að auglýsa á þann hátt sem þau gera.
Í nýrri skýrslu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar um nikótínpúða kemur fram að sala slíkra púða hefur margfaldast á síðustu árum. Þetta er fyrsta skýrsla stofnunarinnar um púðana og áhrif þeirra og er þar sérstaklega tekið fram að verja þurfi ungmenni fyrir ágangi tókbaksfyrirtækja sem beini spjótum sínum að ungu fólki með því að setja sæt bragðefni í púðana og fá áhrifavalda til að markaðssetja þá. Verkefnastjóri tóbaksvarna hjá embætti landlæknis segir skýrsluna tímabæra og notkun hér á landi sé sú mesta á Norðurlöndunum. „Við erum með notkun sem sýnir 30% daglega notkun ungra karlmanna og í kringum 20% ungra kvenna,“ segir Viðar Jensson hjá embætti landlæknis. „Þetta er auðvitað með ólíkindum að þetta fái að viðgangst, að ungt fólk sé svolítið platað til þess að fara að nota þessar vörur með auglýsingum, bragðefnum og útliti eins og þessi skýrsla bendir á,“ bætir Viðar við. „Við þurfum regluverk með afleiðingum“ Hann segir þó að árangur hafi náðst í forvörnum og ekki sjáist lengur tölur um aukningu í notkun. Þar hafi skattlagning púðanna haft mest áhrif. Taka þurfi á söluumhverfinu svo einstaklingar undir átján ára aldri geti ekki keypt vörurnar. „Við þurfum regluverk sem bannar þeim það, að nota bragðefni, að auglýsa á þann hátt sem þau gera. Við þurfum líka regluverk með afleiðingum, að það hafi afleiðingar ef þú afgreiðir ungt fólk um þessar vörur.“ Ný notkun sem sé ekki að koma í stað reykinga Rangt sé að þeir sem noti þessa púða séu að nýta þá til að hætta reykingum. „Það er ekkert eins hættulegt og að reykja, við vorum búin að ná reykingum niður fyrir mörgum árum og jafnvel áratug. Þetta er ekki það,“ segir Viðar og segir 5% íbúa hér á landi reykja daglega sem sé ein lægsta tíðni í Evrópu. „Þetta er ný notkun sem er að koma inn og ungt fólk er að verða háð nikótíni. Það hefur þær afleiðingar að þú þarft stöðugt að vera að nota þessar vörur, svo ferðu í fráhvarf ef þú notar ekki. Þetta hefur áhrif á einbeitingu, á svefn, á skap. Þetta hefur bara áhrif á einstaklinga,“ bætir Viðar við.
Nikótínpúðar Heilbrigðismál Embætti landlæknis Börn og uppeldi Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira