Milt veður en bætir í úrkomu þegar líður á daginn Atli Ísleifsson skrifar 15. maí 2026 06:57 Fremur milt veður að deginum með hita að 13 stigum fyrir norðan. Vísir/Vilhelm Á Grænlandshafi er dýpkandi lægðardrag sem dregur hægt vaxandi suðaustanátt yfir landið. Sums staðar verður strekkingur við suður- og vesturströndina seinnipartinn.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði smá væta í fyrstu, en bæti svo í úrkomu þegar líður á daginn. Á Norður- og Austurlandi verður þó skýjað með köflum, jafnvel sólarglennur. Fremur milt veður að deginum með hita að 13 stigum fyrir norðan. Á morgun, laugardag, er spáð stífri suðaustanátt með rigningu, en áfram þurru á Norður- og Austurlandi. Hægari austlæg átt og úrkomulítið á sunnudag, en víða næturfrost. Áfram útlit fyrir rólegheitaveður og úrkomulítið fram eftir næstu viku. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Suðaustan og austan 8-15 m/s og víða rigning eða súld, einkum sunnanlands, en bjart norðaustantil. Hiti 4 til 14 stig, hlýjast á Norðurlandi, en svalast með austurströndinni. Á sunnudag: Austlæg átt, yfirleitt 3-10 m/s og skýjað með köflum, en stöku síðdegisskúrir sunnan- og vestanlands. Hiti 4 til 11 stig, svalast austanlands. Á mánudag: Austlæg átt, 3-10 m/s og lítilsháttar væta austanlands, en annars skýjað með köflum og stöku skúrir síðdegis. Hiti 5 til 13 stig, hlýjast vestanlands. Á þriðjudag og miðvikudag: Útlit fyrir áframhaldandi austlæga eða breytilega átt með dálítilli vætu fyrir austan, en bjart með köflum vestantil og fremur milt veður. Á fimmtudag: Líklega hægir vindar og væta í flestum landshlutum, en áfram milt veður.
Veður Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Fleiri fréttir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Sjá meira