Ríða, drepa, giftast Arna Sif Ásgeirsdóttir skrifar 13. maí 2026 10:30 Einu sinni gengu þrír blindir menn fram á fíl. Þeir höfðu aldrei áður komist í tæri við þá skepnu og voru því afar forvitnir. Þeir þreifuðu einn í einu á fílnum til að komast að raun um hvernig hann liti út. Sá fyrsti sagði: „Fíllinn er langur og mjór eins og reipi“. „Nei“, sagði annar, „hann er hár, hrjúfur og breiður eins og veggur“. „Ykkur skjátlast báðum hrapallega“, sagði sá þriðji, „fíllinn líkist mest feitri slöngu“. Í dag virðumst við mörg vera blindu mennirnir í þessari fornu indversku dæmisögu. Stór hluti okkar er á samfélagsmiðlum sem eru hannaðir til að styrkja okkar eigin lífssýn. Örstutt myndbönd dæla í okkur afþreyingu og upplýsingum á ljóshraða og athyglisgetan minnkar. Algóritminn sérsníður efni að lífsviðhorfum og áhugamálum hvers og eins sem heldur okkur við skjáinn. Fólk hefur svo tilhneigingu til að velja sig oftar frá því sem er í mótsögn við þeirra eigin skoðanir. Hægt og rólega líður því eins og allt heilbrigt fólk hljóti að vera á sama máli og það. Fólk með annars konar sjónarmið er þá eitthvað skrítið eða jafnvel hættulegt. Inn í þetta bætist svo hverfandi úthald fólks til að lesa sér til gagns, klára að lesa löngu greinina til enda eða kynna sér málefni til hlýtar. Fjölmiðlar keppast við að ná athygli fólks og aðferðir þeirra í auknum mæli orðnar vafasamar. Helst er lögð áhersla á smelli-fréttamennsku þar sem málefni eru aðeins rædd á yfirborðinu og fólk skipar sér í fylkingar með takmarkaða vitneskju. Pólitíkusar sem sækjast eftir atkvæðum þessa stundina eru farnir að falla í þessa gryfju. Þeir telja að til að fá atkvæði þurfi þeir að tilkynna almenningi hvern þeir myndu drepa og hverjum þeir myndu ríða og giftast. En það er í raun ekki akkúrat svarið við spurningunni sem stjórnmálamennirnir halda að hafi áhrif á atkvæðin og viðhorf fólks til þeirra. Heldur það að hafa verið „team player” fyrir að vera ekki yfir það hafinn að svara svona „laufléttri og skemmtilegri” spurningu í vefþætti og komast þá hjá því að vera málaður sem „leiðinlegi stjórnmálamaðurinn”. Eru þetta áherslurnar og sjónarmiðin sem ég þarf til að geta tekið upplýsta ákvörðun í kjörklefanum? Já bíddu, hann sagði að hann myndi drepa þessa og giftast þessari og ríða þessari? Einmitt, já, gott svar, hann fær mitt atkvæði! Það er auðvitað absúrd að við séum komin á þetta plan í „virðulegri” kosningabaráttu. Sjónarhorn eru óendanlega mörg. Ef við gefum okkur að það sé ágreiningur á milli tveggja aðila, þá eru tvö sjónarhorn og síðan sjónarhorn beggja aðila í einum graut. Sannleikurinn er alltaf einhvers konar blanda af ótal mismunandi sjónarhornum. Margir hlutir geta verið sannir á sama tíma þó þeir séu hálf mótsagnakenndir, eins og dæmið um fílinn sýnir. Enginn einn veit allan sannleikann. En bíðum nú hæg, nú er ég ekki að tala um gallharðar staðreyndir sem ekki er hægt að rökræða, heldur upplifanir fólks á aðstæðum og samskiptum. En það virðist erfitt í dag að skilja þarna á milli. Nemandi sagði í tíma hjá mér um daginn „Kaupmannahöfn er ömurleg borg”. Ég sagði þá „Segðu frekar, að þér finnist hún vera ömurleg, ekki segja að hún sé það”. Upphófust þá heimspekilegar umræður um hvar skilur á milli álita fólks og staðreynda. En það er efni í aðra grein. Ég bý yfir þeim forréttindum og mikilvæga hlutverki að kenna kynslóðum framtíðarinnar. Eitt af því sem ég hef stuðst við í kennslunni er námsefni sem er byggt á DAM (díalektísk atferlismeðferð) sem er hönnuð af sálfræðingum og öðrum fagaðilum. Aðferðarfræðin hvetur meðal annars til þess að horfa til margra sjónarhorna sem eykur vellíðan og dregur úr erfiðum tilfinningum. Þegar við festumst í okkar eigin sjónarhorni verðum við skilningslaus, dómhörð, fordómafull og jafnvel vænisjúk. Víðsýni getur frelsað okkur frá sálarkvölum og óþreytandi dómhörku í eigin garð og annarra. Í kennslustundum fæ ég oft mjög góðar spurningar sem reyna á og ég þarf að gera mitt besta til að gefa góð svör. Eitt sinn spurði nemandi mig „Hvað með einræðisherra? Er eitthvað vit í því eða gott fyrir mann að reyna setja sig í spor þeirra?” Svarið er, já! Það að rýna í afstöðu og skoðanir einræðisherra gæti verið víti til varnaðar. Einræðisherrar eru andstæðingar skoðanaskipta og ólíkra sjónarmiða. Aðeins þeirra sýn er sannleikur og fólk með aðrar skoðanir eru fávitar, jafnvel glæpamenn eða réttdræpir. Sagan segir okkur hvaða hörmungar áhrif þeir hafa haft á samfélög og heiminn allan. Við erum öll að upplifa þessi áhrif í rauntíma þessa dagana. En, þegar manni finnst allt vera fara til andskotans er gott að minnast þess sem Hans Rosling, læknir og fræðimaður, sagði í viðtali hjá dönskum fréttamanni um fréttamennsku. „Ef þið veljið að sýna aðeins ljóta skóinn minn, hann er bara hluti af mér. En ef þið veljið að sýna andlitið mitt þá sjáum við eitthvað annað. Þið sýnið aðeins lítinn hluta og kallið það allan heiminn.“ Hættum að horfa einungis á ljóta skóinn og horfum á alla manneskjuna, hvern krók og kima. Köfum dýpra og leggjum okkur fram. Aðeins þannig munum við komast að sameiginlegum sannleika. Hlustum meira, spyrjum meira, hjálpumst að við að skilja hvert annað, leiðum saman ólík sjónarmið og finnum lausnir í sameiningu. Að lokum þetta: Mig langar að ríða málamiðlunum, giftast góðum samskiptum milli ólíkra aðila og drepa skautun. Höfundur er grunnskólakennari á höfuðborgarsvæðinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Reykjavík er að byrja á röngum enda Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir Skoðun Þegar ,,ríkið” yfirgaf byggðina Ragnar Sigurðsson Skoðun Húsnæðispakkinn Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Meira afl fyrir orkuna Gunnar Guðni Tómasson Skoðun Tvær flugur í einu höggi: Einkavætt og réttarríkið vængstíft! Ögmundur Jónasson Skoðun Meira íslenskt grænmeti er velferðarmál Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun „Biðlisti“ Rannveig Haraldsdóttir Skoðun Bruninn á Stuðlum, skýrsla HMS Ingibjörg Einarsdóttir Skoðun Varðskipið Þór: Frá samtakamætti til upphafs Landhelgisgæslu Íslands Íris Róbertsdóttir Skoðun Réttur barna til tvítyngis: íslenskt táknmál og íslenska Júlía Guðný Hreinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Verum JÁ-kvæði í ágúst Kristján Kristinsson skrifar Skoðun Nágranninn Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir skrifar Skoðun Er ESB að grafa undan eigin hagsmunum? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landhelgisgæslan til taks - í heila öld Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þegar ,,ríkið” yfirgaf byggðina Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Húsnæðispakkinn Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Varðskipið Þór: Frá samtakamætti til upphafs Landhelgisgæslu Íslands Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Lýðræðisveislan í ágúst - Upplýsingar, fullveldi og framtíðarsýn fullvalda þjóðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Meira íslenskt grænmeti er velferðarmál Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun „Biðlisti“ Rannveig Haraldsdóttir skrifar Skoðun Meira afl fyrir orkuna Gunnar Guðni Tómasson skrifar Skoðun Reykjavík er að byrja á röngum enda Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Tvær flugur í einu höggi: Einkavætt og réttarríkið vængstíft! Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hanna Katrín Friðriksson og hvalveiðar — Frelsi eða forræðishyggja? Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Nokkur orð um samkennd Ari Allansson skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum, skýrsla HMS Ingibjörg Einarsdóttir skrifar Skoðun Réttur barna til tvítyngis: íslenskt táknmál og íslenska Júlía Guðný Hreinsdóttir skrifar Skoðun Öruggt ferðasumar hefst með góðum brunavörnum Methúsalem Hilmarsson skrifar Skoðun Hvernig lesum við skoðanagreinar? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Stjórnsýsla Íslands er ekki „allt of lítil“, hún er „lítil og skilvirk“ Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Vatnaskil í markaðssetningu Íslands Pétur Þ. Óskarsson skrifar Skoðun Af hverju hunsa Samfylkingin og Vinstrið umboðsmann barna? Þórður Halldórsson skrifar Skoðun Dómar sem eru ekkert annað en „one way ticket“ á Litla-Hrauni Davíð Bergmann skrifar Skoðun Spyrjum við áfram nýrra spurninga? Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Sigurjón Þórðarson og sannleikurinn Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða áfengisgjaldið? Einar Bárðarson skrifar Skoðun Þegar dýravelferð víkur fyrir hagnaði Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Hver vill borða brauðið? Jón Óskar Hinriksson skrifar Skoðun Hvað varð um planið? Pétur Óskarsson skrifar Sjá meira
Varðskipið Þór: Frá samtakamætti til upphafs Landhelgisgæslu Íslands Íris Róbertsdóttir Skoðun
Skoðun Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Varðskipið Þór: Frá samtakamætti til upphafs Landhelgisgæslu Íslands Íris Róbertsdóttir skrifar
Skoðun Lýðræðisveislan í ágúst - Upplýsingar, fullveldi og framtíðarsýn fullvalda þjóðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hanna Katrín Friðriksson og hvalveiðar — Frelsi eða forræðishyggja? Hjörvar Sigurðsson skrifar
Skoðun Stjórnsýsla Íslands er ekki „allt of lítil“, hún er „lítil og skilvirk“ Halldór Jörgen Olesen skrifar
Varðskipið Þór: Frá samtakamætti til upphafs Landhelgisgæslu Íslands Íris Róbertsdóttir Skoðun