Handbolti

„Tíma­bilið hefur verið rússibani“

Hjörvar Ólafsson skrifar
Anton Rúnarsson stóð sig frábærlega á sínu fyrsta tímabili í brúnni hjá Valsliðinu. 
Anton Rúnarsson stóð sig frábærlega á sínu fyrsta tímabili í brúnni hjá Valsliðinu.  Vísir/Ernir

Valur vann alla stóru titlana í handbolta kvenna á fyrsta tímabilinu þar sem Anton Rúnarsson hélt um stjórnartaumana hjá liðinu. Anton var stoltur og þakkátur eftir sigurinn gegn ÍBV í kvöld sem tryggði Valsliðinu Íslandsmeistaratitilinn.  

„Það eru miklar tilfinningar í gangi þessa stundina. Við náðum að svara fyrir slæmt tap í síðasta leik og sýna okkar rétta andlit að þessu sinni. Það hefur margt gengið á í vetur í okkar leikmannahópi og eftir allan þann rússibana er það er mikill léttir að þetta sé í höfn,“ sagði Anton í samtali við Símann. 

„Ég er stoltur af leikmönnum mínum og einkum og sér í lagi þeim ungu sem áttu stór móment í þessum mikilvæga leik. Ég er þakklátur fyrir það tækifæri að taka við þessu magnaða liði. 

Ég tók við frábæru búi og er með stútfullt lið af mögnuðum íþróttamönnum. Ég er mjög glaður af hafa landað Íslandsmeistaratitli sem var klárlega markmiðið,“ sagði Anton einnig. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×