Jenner segist hafa veikst af Ozempic Magnús Jochum Pálsson skrifar 8. maí 2026 17:02 Kris Jenner lét sig ekki vanta á galakvöld Met-safnsins fyrr í mánuðinum. Getty Athafnakonan Kris Jenner segist hafa orðið veik af notkun þyngdarstjórnunarlyfsins Ozempic. Hún hafi í kjölfarið farið að sprauta sig með annars konar peptíðum samhliða því að neyta lýsis og ómega-3-fitusýra.
Jenner og dætur hennar hafa líkt og margir aðrir í Hollywood farið ýmsar leiðir til að halda sér ungum og mjóum, má þar helst nefna ógrynni lýtaaðgerða til að breyta andlitum sínum og líkamsbyggingu. Jenner vakti mikla athygli í fyrra eftir að hafa farið í umfangsmikla lýtaaðgerð á andliti sínu. Kris Jenner var í vikunni gestur í hlaðvarpinu SHE MD, sem læknirinn Thais Aliabadi og heilsugúrúinn Mary Alice Haney halda úti, og ræddi þær um heilsu sína, lyfjanotkun og útlit. Þar sagðist Jenner hafa prófað þyngdarstjórnunarlyfið Ozempic en ekki fílað það. „Ég prófaði það einu sinni þegar enginn vissi hvað það var og varð virkilega veik af því,“ sagði hún í hlaðvarpinu. Meðan hún var á lyfinu hafi henni liðið eins og hún gæti ekki unnið vegna ógleði og því ákveðið, í samráði við sérfræðing sinn í þessum málum, að prófa eitthvað annað. „Ég uppgötvaði að peptíð-sprautur virkuðu mjög vel fyrir mig og svo fylgi ég því eftir með bætiefnum,“ sagði hún. Þess má geta að þyngdarstjórnunarlyf á borð við Ozempic og Wegovy eru í raun peptíð, það er þau innihalda semaglútíð í flokki glúkagonlík-peptíðs-1. Sprautanleg peptíð hafa verið mikið til umræðu upp á síðkastið en um er að ræða stuttar lengjur amínósýra sem tengjast saman með peptíðsýrum og virka sem boðefni, hormón eða sem hluti af stærra próteini. Notkun ólöglegra peptíða hefur færst sérstaklega í aukana og hafa þau mismunandi virkni eftir tegundum. Til viðbótar við peptíðin hafi hún byrjað að neyta bæði lýsis og ómega-3 fitusýra. „Það var algjör leikbreytir,“ sagði Jenner í viðtalinu. „Það gaf mér nokkra aukalega klukkutíma á nóttu því ég vakna svo snemma.“
Heilbrigðismál Heilsa Útlit Raunveruleikaþættir Þyngdarstjórnunarlyf Tengdar fréttir Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Notkun á kolólöglegu efni sem fólk sprautar sig með til að fá brúnni húðlit hefur aukist að sögn húðlæknis. Nýrnabilun og heilabjúgur eru á meðal aukaverkanna og dæmi eru um að foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra. 4. maí 2026 19:03 Bein vaxið yfir augun og fólk afmyndast í andliti við notkun peptíða Una Emilsdóttir, sérnámslæknir í atvinnu- og umhverfislæknisfræði, segir alvarlegt að ungt fólk sprauti sig með ólöglegu peptíði. Þó svo að efnin geti haft einhver jákvæð áhrif sé of lítið vitað um áhrifin á líkamann í heild. Dæmi séu um að flutt séu inn eitruð peptíð. Þeir geti valdið hraðari vexti krabbameins og afmyndun beina í andliti. 26. febrúar 2026 13:30 Mest lesið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Sambandi Cox og McDaid lokið Lífið Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Lífið Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist Sex íslenskir söngvarar ráðnir til Þjóðaróperunnar Menning „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Lífið Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Lífið Fleiri fréttir Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Sjá meira
Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Notkun á kolólöglegu efni sem fólk sprautar sig með til að fá brúnni húðlit hefur aukist að sögn húðlæknis. Nýrnabilun og heilabjúgur eru á meðal aukaverkanna og dæmi eru um að foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra. 4. maí 2026 19:03
Bein vaxið yfir augun og fólk afmyndast í andliti við notkun peptíða Una Emilsdóttir, sérnámslæknir í atvinnu- og umhverfislæknisfræði, segir alvarlegt að ungt fólk sprauti sig með ólöglegu peptíði. Þó svo að efnin geti haft einhver jákvæð áhrif sé of lítið vitað um áhrifin á líkamann í heild. Dæmi séu um að flutt séu inn eitruð peptíð. Þeir geti valdið hraðari vexti krabbameins og afmyndun beina í andliti. 26. febrúar 2026 13:30