Ósátt við að vera sett í starfshæfismat af leikhúsinu Magnús Jochum Pálsson skrifar 8. maí 2026 14:43 Steinunn Ólína var í veikindaleyfi frá Þjóðleikhúsinu í eitt og hálft ár fram í apríl síðastliðinn. Vísir/Vilhelm Leikkonan Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir er ekki sátt við að Þjóðleikhúsið óski eftir því að hún gangist undir starfshæfismat frá einkafyrirtæki áður en hún snýr til baka á fjalirnar eftir eitt og hálft ár í veikindaleyfi. Samstarfskona hennar í leikhúsinu segist sjálf hafa gengist undir slíkt mat og segir það hag starfsfólks að gera slíkt. „
Ég er svo lánsöm að vera ríkisstarfsmaður fastráðin við þjóðleikhúsið (hóf störf þar 6 ára en vitanlega þá samningslaus á barnalaunum) en af því að ég er ríkisstarfsmaður gat ég því farið í veikindaleyfi þegar skrokkurinn á mér gafst upp fyrir einu og hálfu ári síðan. Forréttindi!!!!“ skrifaði Steinunn Ólína í Facebook-færslu fyrr í dag. „Þar komu til meiðsli við vinnu í Þjóðleikhúsinu og áratuga líkamlegt vinnuálag (leikarar, dansara íþróttafólk) plús 4 börn, öll á brjósti lengur en sex mánuði Alma Möller!!! fársjúkur eiginmaður og ummönnun aldraðs föður. Æ bara svona konuvæl.“ Steinunn Ólína setti þessa mynd af sér hjólandi við færsluna. Hún sé öll að hressast, veikindaleyfinu hafi lokið í lok apríl og hún hlakkað til að lesa glænýtt leikrit eftir mesta leikskáld þjóðarinnar. „Leikrit sem hefur legið allt of lengi í skúffu Þjóðleikhússtjóra! Sem er skandall!“ skrifar hún. „En þá er mér gert af Þjóðleikhúsi Íslendinga, fyrst leikara, að fara í starfshæfimat hjá einkafyrirtæki Auðnast ehf! hjá læknum sem ég hef aldrei hitt og hafa ekkert haft af mér að segja! Ekki veit ég hvernig það fólk á að leggja mat á nokkurn skapaðan hlut og mér finnst það harla skrýtið að hvorki ég sjálf sé talin heppileg heimild og ekki minn læknir, sem hefur fylgt mér í veikindaleyfi,“ skrifar hún. „Þjóðleikhúsið vill kannski ekki að ég svona pólitískt toxísk miðaldra kona fái að stíga á svið en allavega. Kannski er best fyrir Þjóðleikhúsið að losa sig við þessa skessu.“ Steinunn spyr aðra ríkisstarfsmenn hvernig svona mat fari fram. Verði þrekpróf? Þurfi hún að gefa blóðsýni? Þarf að syngja lag eða fara með einræðu eftir leikskáld? „Ekki er öll vitleysan eins!“ Telja leikhúsið fara eftir lögum og reglum Steinunn Ólína hefur farið mikinn í skrifum á Facebook undanfarin misseri og vekja skrif hennar jafnan eftirtekt. Ekki stendur á svörum. Meðal þeirra sem svara henni er Ólafía Hrönn Jónsdóttir, kollegi hennar við Þjóðleikhúsið. „Ég var í veikindaleyfi síðasta vor og það var líka farið fram á þetta þegar ég byrjaði að vinna aftur. Þetta er gert fyrir þig svo það sé öruggt að þú sért ekki pínd í vinnuna og ekki tilbúin,“ skrifar Ólafía í ummælum við færsluna. Ólafía Hrönn hefur gert það gott í Ormstungu í Þjóðleikhúsinu í vetur. Steinunn Ólína kaupir ekki þessi svör leiksystur sinnar og svarar: „Fyrir mig? Nei þetta er gert fyrir leikhúsið vegna þess að það er ódýrara fyrir Þjóðleikhúsið að hafa leikara í veikindaleyfi því þá borgar BHM brúsann.“ Magnea Marinósdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur og sérfræðingur í jafnréttismálum, svarar Steinunni Ólínu og segir þessi viðbrögð leikhússins samkvæmt lögum og reglum hins opinbera. „Gildir jafnt um alla, þ.e. öll sem hafa farið í veikindaleyfi þurfa að fá veikindavottorð frá lækni og öll sem koma aftur til vinnu að fá starfshæfnivottorð,“ skrifar Magnea. Guðríður Eldey Arnardóttir, framkvæmdastjóri Samáls, tekur undir þau skrif og segir enga ástæðu fyrir Steinunni að taka þessu illa. Guðríður Eldey Arnardóttir er framkvæmdastjóri Samáls, samtaka álframleiðenda á Íslandi.Sigurjón Ólason „Þjóðleikhúsið fylgir leiðbeiningum mannauðsdeildar þaðan koma skýr skilaboð til forstöðufólks að óska eftir starfshæfnivottorði við endurkomu úr veikindaleyfi. Þetta er meðal annars ákvæði í sameiginlegum réttindakafla ríkisstarfsmanna. Þetta er nú ekki flóknara en svo að trúnaðarlæknir stofnunar fer yfir heilsufar og sögu með spurningum. Ástæða þess að það hefur verið lögð meiri áhersla á þetta undanfarin ár er að starfsfólk sem er með 18 ára starfsaldur hjá hinu opinbera á rétt á 360 veikindadögum á ári. Einstaklingur getur komið til baka að loknu leyfi og unnið í 5 virka daga og þá endurnýjast rétturinn í aðra 360 daga. Svona gæti þetta gengið endalaust nema .. .. forstöðumaður stofnunar getur sagt starfsmanni upp hafi hann verið meira veikur en ekki á 5 ára tímabili.. En það er nú frekar ömurleg staða að setja veikum einstaklingi upp störfum .... Skelltu þér bara til Dr. Trúnó og farðu að hlakka til þess að gleðja okkur landsmenn með þínum frábæru sviðstöktum.“
Þjóðleikhúsið Leikhús Menning Vinnumarkaður Mest lesið Fólk eigi ekki að vera feimið við sleipiefnið Heilsa „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Bíó og sjónvarp Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Melabúðin fagnar sjötíu árum Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Sjá meira