Carrick segist bíða rólegur Sindri Sverrisson skrifar 8. maí 2026 07:30 Michael Carrick virtist afslappaður þegar hann ræddi við blaðamenn. Getty/Ash Donelon Michael Carrick viðurkennir að það sé mikilvægt að fá á hreint hvort hann verði áfram þjálfari Manchester United á næstu leiktíð, eins og flest bendir þó til, en kveðst rólegur yfir stöðunni.
Carrick tók við United-liðinu þegar Rúben Amorim var rekinn í janúar, til að stýra því út leiktíðina. Þó að þrjár umferðir séu eftir er United þegar búið að tryggja sér sæti í Meistaradeild Evrópu, og sigur gegn Sunderland á morgun færi langt með að tryggja liðinu 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, eftir sigra gegn Liverpool, Brentford og Chelsea í síðustu leikjum. Enskir miðlar segja að búist sé við því að Carrick verði boðinn langtímasamningur hjá United og hann viðurkenndi á blaðamannafundi í gær að mikilvægt væri að fá málin á hreint sem fyrst, áður en baráttan á félagsskiptamarkaðnum fer svo í gang í sumar. „Það er mikilvægt að hlutirnir séu skýrir. Við höfum endað vel, komið okkur í góða stöðu og varðandi hlutverk mitt og hvernig það lítur út í framtíðinni, þá held ég að þetta sé bara eðlilegur tímapunktur. Það var alltaf talað um þetta undir lok tímabilsins, ef ekki í lok tímabilsins,“ sagði Carrick þegar hann svaraði blaðamönnum í gær. Undir hans stjórn hefur United unnið 10 af 14 deildarleikjum og safnað fleiri stigum en nokkurt annað lið i ensku úrvalsdeildinni. Þá virðist Carrick njóta mikilla vinsælda hjá leikmönnum United. „Á þessu stigi snýst þetta bara um að koma strákunum í stöðu til að klára tímabilið vel og svo, eins og ég hef sagt allan tímann, er ég rólegur yfir þessu. Þetta mun skýrast þegar það á að skýrast. Þetta er ekki í mínum höndum, svo við sjáum bara til hvað gerist,“ sagði Carrick.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Enski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Sjá meira