Innlent

Burðar­dýr í bráðaaðgerð og hindranir í sam­starfi

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Margrét Helga Erlingsdóttir les kvöldfréttir í kvöld.
Margrét Helga Erlingsdóttir les kvöldfréttir í kvöld. vísir

Portúgölsk kona á sjötugsaldri, sem reyndi að smygla fíkniefnum innbyrðis til landsins, þurfti að fara í bráðaaðgerð og liggur nú á Landspítalanum. Í kvöldfréttum verður rætt við lögreglu sem segir að málum sem snúa að burðardýrum hafi fjölgað verulega. Að jafnaði séu hátt í tuttugu manns í gæsluvarðhaldi vegna slíkra brota á Suðurnesjum.

Við hittum einnig oddvita Miðflokksins og Viðreisnar í borginni og spyrjum hvort flokkarnir eigi mögulega samleið í meirihlutasamstarfi. Þá rýnum við í pólitíkina í Kópavogi. Sjálfstæðisflokkurinn er stærstur í bæjarfélaginu en Samfylkingin er á siglingu. Áhugamenn um stjórnmál sem halda úti hlaðvarpinu „Korter í kosningar“ mæta í myndver og fara yfir spennandi stöðu.

Skellt verður í lás hjá síðustu kaffihúsum Kaffitárs í lok mánaðar. Við förum á eitt kaffihúsið og ræðum við rekstarstjóra kaffihúsanna í beinni en fyrirtækið á ríflega þrjátíu ára sögu að baki. Þá skoðar Kristján Már Unnarsson framkvæmdir við Fossvogsbrú en staurar fyrir brúarstöpla voru reknir niður í sjávarbotn í fyrrinótt.

Í Sportinu hittum einn reynslumesta leikmann Bestu deildarinnar sem kom fyrst til landsins fyrir fjórtán árum og í Íslandi í dag höldum við áfram kosningaumfjöllun okkar um málefnin sem eru í brennidepli á landsbyggðinni. Í kvöld förum við á Vesturland og Vestfirði og ræðum við íbúa. Ekki missa af því.

Þetta og margt fleira á samtengdum rásum Sýnar, Vísis og Bylgjunnar klukkan 18.30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×