Víðistaðatún, lykill að öflugri vetrarútivist í Hafnarfirði Elísabet Rós Birgisdóttir skrifar 5. maí 2026 06:02 Hafnarfjörður er einstakur bær. Hann stendur á hrauni og er umvafinn náttúru sem býður upp á ótal tækifæri til útivistar allt árið um kring. Við eigum fallegar gönguleiðir, magnaðar hraunmyndanir, langa strandlengju og græn svæði sem gera bæinn að einum besta stað landsins til að njóta hreyfingar, náttúru og samveru utandyra. Ein af þessum perlum er Víðistaðatún, sannkölluð perla í hjarta bæjarins, fallegur almenningsgarður og vinsælt útivistarsvæði fyrir fólk á öllum aldri. Þar má finna fjölbreytta afþreyingu, útilistaverk, leiksvæði fyrir börn með aparólu, kastala og ærslabelg, grillhús og sex holu frisbígolfvöll. Á sumrin er þar einnig tjaldsvæði og stórt viðburðasvæði þar sem haldnir hafa verið fjölbreyttir viðburðir, svo sem Víkingahátíð og hundasýningar. Flest þekkjum við Víðistaðatún sem fallegt og líflegt útivistarsvæði á sumrin. En möguleikarnir yfir vetrartímann eru langt frá því að vera fullnýttir. Þar liggur spennandi tækifæri. Nýlega var sagt frá því í Fjarðarfréttum að öflugur hópur Hafnfirðinga hefði tekið þátt í einni stærstu gönguskíðakeppni heims, Engadin í Sviss. Sá árangur sem þar náðist er hreint út sagt glæsilegur. Hann byggir á metnaði, elju og áhuga einstaklinga sem hafa nýtt þær aðstæður sem eru í boði, meðal annars á Víðistaðatúni þegar færi gefst og í Bláfjöllum þegar veður leyfir. Þessi þróun segir okkur eitt en það er að áhuginn fyrir gönguskíðum er til staðar og hann fer vaxandi. Frá sumarperlu í heilsárs útivistarsvæði Gönguskíði eru íþrótt sem sameinar hreyfingu, náttúruupplifun og lýðheilsu á einstakan hátt. Sífellt fleiri vilja prófa, æfa og njóta þess að hreyfa sig utandyra yfir vetrartímann. Til að styðja við þann áhuga þarf góð aðstaða að fylgja með. Með tiltölulega einföldum og markvissum aðgerðum getum við stutt þá framtíðarsýn að gera Víðistaðatún að aðgengilegu gönguskíðasvæði fyrir alla, hvort sem fólk vill renna sér stuttan hring eftir vinnu, æfa reglulega eða njóta góðrar útivistar með fjölskyldunni um helgar. Með snjóframleiðslu og bættri aðstöðu mætti einnig nýta brekkuna við Víðistaðakirkju betur til leiks og sleðamennsku. Börn fengju aukin tækifæri til að leika sér í snjónum og fjölskyldur gætu átt saman góðar stundir utandyra, líka á dimmustu mánuðum ársins. Það þarf ekki alltaf að flækja málin. Stundum þarf bara að sjá tækifærið sem er beint fyrir framan okkur. Við getum meðal annars sett upp snjóbyssur til að tryggja betri nýtingu frostdaga, mótað og viðhaldið gönguskíðabrautum sem henta bæði byrjendum og lengra komnum, nýtt brekkurnar við Víðistaðakirkju betur fyrir leik, sleðamennsku og fjölskylduvæna útivist, bætt lýsingu og aðstöðu þannig að svæðið nýtist betur yfir dimmari mánuðina og stutt við skipulagða starfsemi, námskeið og kynningu á íþróttinni. Framsókn leggur áherslu á að bæta aðstöðu á útivistarsvæðum til að efla heilsu, lífsgæði og samveru íbúa. Víðistaðatún er kjörið dæmi um svæði þar sem hægt er, með markvissum og tiltölulega einföldum aðgerðum, að skapa enn meiri verðmæti fyrir samfélagið. Af hverju ekki að nýta það tækifæri? Með bættri aðstöðu gæti Víðistaðatún orðið enn öflugri miðstöð útivistar, bæði fyrir daglega hreyfingu og fjölskyldustundir allt árið um kring. Þetta snýst um Hafnarfjörð. Höfundur er á lista Framsóknar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Framsóknarflokkurinn Hafnarfjörður Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand skrifar Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ekki er allur afgangur eins Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Virðing er ekki veikleiki Theodór Francis Birgisson skrifar Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar Skoðun Skiptir máli að skipta máli í vinnunni? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Kona með spegil Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar Sjá meira
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar
Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar
Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar
Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar