Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Eiður Þór Árnason skrifar 4. maí 2026 16:31 Viðbragðsaðilar við hlið bifreiðarinnar sem var keyrt inn í mannfjöldann. AP/Sebastian Willnow Minnst einn lést þegar ökumaður keyrði inn í mannfjölda í borginni Leipzig í Þýskalandi síðdegis í dag. Fleiri eru særðir en lögregla segir að ökumaðurinn hafi verið handtekinn og almenningi stafi engin frekari hætta af honum.
Tveir voru fluttir alvarlega særðir á sjúkrahús og tuttugu til viðbótar „urðu fyrir áhrifum.“ Þetta hefur AP-fréttaveitan eftir Axel Schuh, slökkviliðsstjóra Leipzig, sem veitti ekki nánari upplýsingar. Í upphafi greindu talsmenn borgarinnar frá því að tveir hefðu látið lífið en ríkismiðillinn MDR fullyrti síðar að talsmaður lögreglu hefði leiðrétt þetta og gefið út að aðeins væri búið að staðfesta eitt andlát. Þá segir miðillinn ekkert hafa verið gefið út um það hvort um viljaverk eða slys væri að ræða. Susanne Lübcke, talsmaður lögreglunnar, sagði að ökumaðurinn hefði stöðvað bílinn sjálfur og verið í honum þegar hann var handtekinn. Umrædd bifreið sem götublaðið Bild segir vera Volkswagen Taigo. Henni hafi verið keyrt á miklum hraða.AP/DPA/Sebastian Willnow Atvikið átti sér stað í Grimmaischen Straße, nálægt St Nicholas-kirkju og Leipzig-háskóla. Um er að ræða verslunargötu í hjarta borgarinnar sem tengir markaðstorg hennar við ýmis kennileiti. Borgarstjóri vottaði aðstandendum samúð sína Fram kemur í frétt DW að Burkhard Jung, borgarstjóri Leipzig, hafi staðfest fyrri bráðabirgðatölu og gefið út að búið væri að tryggja öryggi fólks á nærliggjandi svæði. Atvikið átti sér stað í kringum klukkan 15 að íslenskum tíma, að sögn AP-fréttaveitunnar. „Þetta er átakanlegt. Það eina sem ég get gert einmitt núna er að votta fjölskyldum fórnarlambanna samúð mína,“ sagði Jung við fréttamenn á vettvangi. „Allt annað verður að koma í ljós við rannsókn lögreglu og rannsóknaryfirvalda.“ Leipzig er staðsett suðvestur af Berlín og eru íbúar yfir 630 þúsund. Hún er ein af stærstu borgunum í austurhluta Þýskalands. Fréttin hefur verið uppfærð.
Þýskaland Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Innlent Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Innlent Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Veður Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Innlent Fleiri fréttir Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Sjá meira