Innherji

Verð­metið á yfir tíu milljarða þegar fjár­festar keyptu helmings­hlut í Al­galíf

Hörður Ægisson skrifar
Algalíf hefur um tíu ára skeið ræktað örþörunga og unnið úr þeim fæðubótaefnið astaxanthín. Félagið lauk nýverið við stækkun á verksmiðju sinni á Reykjanesi sem þrefaldar árlega framleiðslugetu.
Algalíf hefur um tíu ára skeið ræktað örþörunga og unnið úr þeim fæðubótaefnið astaxanthín. Félagið lauk nýverið við stækkun á verksmiðju sinni á Reykjanesi sem þrefaldar árlega framleiðslugetu.

Þegar hópur innlendra fjárfesta, leiddur af framtakssjóðnum Aldir ásamt meðal annars viðskiptafélögunum Andra og Birgi Má, festi kaup á stórum hlut í Algalíf á Reykjanesi á haustmánuðum síðasta árs þá var líftæknifyrirtækið verðmetið á meira en tíu milljarða í viðskiptunum.


Tengdar fréttir

Algalíf skráð á markað eftir tvö ár

Líftæknifyrirtækið Algalíf stefnir á skráningu á markað 2025. Þá var Baldur Stefánsson, framkvæmdastjóri og einn eiganda ráðgjafafyrirtækisins Hamrar Capital Partners, kjörinn stjórnarformaður Algalífs.

Dropp metið á nærri tvo milljarða þegar sjóðurinn Aldir keypti ráðandi hlut

Fyrirtækið Dropp, sem hefur stækkað hratt undanfarin ár og sérhæfir sig í sendingarþjónustu fyrir netverslanir, var verðmetið á hátt í tvo milljarða króna þegar hinn nýlega stofnaði framtakssjóður Aldir stóð að kaupum á ráðandi eignarhlut í félaginu seint á árinu 2024. Helstu hluthafar sjóðsins, sem fjárfesti í tveimur félögum á liðnu ári, eru lífeyrissjóðir – LSR þar stærstur – og fjárfestingafélög Heiðars Guðjónssonar og viðskiptafélaganna Andra Sveinssonar og Birgis Más Ragnarssonar, en þeir eru jafnframt meðal eigenda rekstrarfélagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×