Hermann: Góðlátlegt grín en ekkert ofbeldi Sindri Sverrisson skrifar 4. maí 2026 08:21 KR-ingar sökuðu Hermann um að kýla Ástbjörn í göngunum eftir leik og úr urðu læti. Vísir/Diego Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, segir að búið sé að gera úlfalda úr mýflugu með fréttum af látunum í leikmannagöngunum á Hlíðarenda eftir tap liðsins gegn KR í Bestu deildinni á laugardaginn.
Hermann fékk að segja sína hlið í hlaðvarpsþætti Fótbolta.net í gær og viðurkenndi þar að hafa gert eitthvað sem varð til þess að Ástbirni Þórðarsyni, leikmanni KR, var brugðið. Samkvæmt fyrstu frétt miðilsins um málið sökuðu KR-ingar Hermann um að hafa kýlt Ástbjörn í þindina en sjálfur segir ekkert ofbeldi hafa átt sér stað. „Við mætumst þarna í göngunum og eins og maður er þá var eitthvað góðlátlegt grín, með bros á vör, sem að maður gerir dags daglega á æfingum og stundum fyrir leik og eftir leik. Það brá einhverjum aðeins við það en enginn slasaður eða neitt ofbeldi í gangi, svo við höfum það alveg á hreinu. Því það er búið að draga mann aðeins í gegnum leðjuna, eins og það hafi verið einhver óskapleg átök sem voru alls ekki,“ sagði Hermann. Búinn að ræða við Ástbjörn Hann kveðst búinn að ræða við KR-inga og að engin frekari eftirmál verði af þessu. Það sé leitt að umræðan eftir frábæran fótboltaleik snúist um þessi meintu átök. „Ég er búinn að heyra í Ástbirni og það er allt í toppmálum. Honum brá kannski aðeins en þetta var ekki neitt „malice“ eða nein leiðindi í þessu af minni hálfu. Það er leiðinlegt að þetta hafi endað með að vera einhverjar fyrirsagnir eftir skemmtilegan fótboltaleik. KR-ingar eru hörkusterkir og Ástbjörn er toppdrengur og toppleikmaður, og ég hef ekkert nema gott um hann að segja,“ sagði Hermann. „Ef einhverjir eru ósáttir þá bara biðst maður afsökunar á að hafa gert eitthvað klaufalega sem átti að vera góðlátlegt grín,“ sagði Hermann en hægt er að hlusta á viðtalið við hann hér.
Besta deild karla Valur KR Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Bein útsending: Arnar kynnir landsliðshópinn Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira