Kennir vallaraðstæðum um: „Sérstaklega þurr og stamur“ Valur Páll Eiríksson skrifar 3. maí 2026 18:46 Ólafur Ingi Skúlason er sáttur við stigin þrjú, ósáttari við spilamennskuna og enn ósáttari við þurran völlinn í Eyjum. Anton Brink/Vísir „Þetta var erfitt, mjög erfitt í dag. Við gerðum okkur erfitt fyrir og byrjuðum mjög illa. En það er karakter að koma til baka og ná að sigla þessu heim,“ segir Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, eftir 2-1 sigur á ÍBV í Vestmannaeyjum í fimmtu umferð Bestu deildar karla.
Blikar byrjuðu sannarlega ekki vel. ÍBV komst 1-0 yfir eftir aðeins 15 sekúndna leik þar sem Anton Ari Einarsson gaf Liam Daða Jeffs mark. Kristófer Ingi Kristinsson jafnaði metin um miðjan fyrri hálfleik og Viktor Karl Einarsson skoraði það sem reyndist sigurmarkið um þann síðari miðjan. Það voru tvö af þremur skotum Breiðabliks að marki í dag. Eðli málsins samkvæmt voru þeir ekki sókndjarfir, en voru þó töluvert meira með boltann en ÍBV. Sóknarleikur þeirra var hægur og hugmyndasnauður en Ólafur segir vallaraðstæður, á glænýju gervigrasi í Vestmannaeyjum, spila inn í. „Mér fannst við eiga í erfiðleikum með völlinn. Ég er pínu hissa á því að hann hafi ekki verið bleyttur meira fyrir leik og í hálfleik. Hann var sérstaklega þurr og stamur og leikurinn bar þess merki. Þetta var pínu sjokk, markið í byrjun, en það var karakter að koma til baka og við erum bara ánægðir,“ segir Ólafur Ingi. Blikar slökuðu fullmikið á klónni í stöðunni 2-1 en sigur þeirra var þó aldrei í mikilli hættu. Leikurinn var hægur og þeir áttu auðvelt með að verjast flestum sóknartilburðum Eyjamanna. „Ég var aldrei rólegur. Við byrjuðum seinni hálfleikinn af krafti og sækjum annað markið en verðum svo passívur á boltann. Hreyfum okkur ekki nóg og erum í tilgangslausum possession leik. Við erum ekki að sækja í þessi svæði sem við viljum heldur meira að halda bolta innan liðsins án þess að það sé einhver broddur í okkur,“ „Þar þurfum við að gera betur, við megum ekki vera passívir þegar við erum yfir. Það kemur. En ég hugsa að, án þess að ég ætli að vera með afskanir, held ég að vallaraðstæður hafi alveg spilað stóran þátt í því að það var erfitt að halda uppi tempoi hérna í dag,“ segir Ólafur Ingi. Breiðablik er eftir sigurinn með ellefu stig í öðru sæti Bestu deildarinnar, fjórum stigum frá toppliði KR, og einu á undan Víkingi sem er í þriðja sæti en á leik inni við Keflavík í kvöld.
Breiðablik Besta deild karla ÍBV Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira