Tap West Ham gefur Tottenham von Valur Páll Eiríksson skrifar 2. maí 2026 15:58 Leikmenn West Ham voru að vonum niðurlútir. West Ham United FC/West Ham United FC via Getty Images Brentford vann langþráðan sigur eftir dræmt gengi, 3-0 á West Ham United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Brentford komst í Evrópusæti en West Ham gæti farið í fallsæti á morgun vegna úrslitanna.
Þrír leikir fóru fram um miðjan dag í ensku úrvalsdeildinni. Gríski varnarmaðurinn Kostas Mavropanos skoraði sjálfsmark og Igor Thiago skoraði sitt 22. mark í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu er Brentford vann 3-0 sigur á West Ham í Lundúnaslag. Daninn Mikkel Damsgaard skoraði þriðja markið. Brentford hafði tapað fjórum af síðustu fimm og unnu loks aftur sigur í deildinni. Sigurinn skaut liðinu upp í sjötta sæti, rétt fyrir neðan Meistaradeildarsæti. West Ham er aftur á móti með 36 stig í 17. sæti, aðeins tveimur stigum fyrir ofan Tottenham. Vinni Tottenham lið Aston Villa á morgun senda Spurs Hamranna niður í fallsæti. Með sigrinum fór Brentford upp fyrir Brighton sem er í sjöunda sæti með 50 stig, stigi á eftir Brentford sem er í sjötta með 51. Brighton tapaði 3-1 fyrir Newcastle United sem endaði þar með fjögurra leikja taphrinu. Daninn William Osula og varnarmaðurinn Dan Burn skoruðu mörk Newcastle áður en miðjumaðurinn ungi Jack Hinshelwood minnkaði muninn fyrir suðurstrendinga. Harvey Barnes gulltryggði sigurinn í lok leiks. Þá skildu Sunderland og fallið lið Wolves jöfn 1-1 á Molineux í Wolverhampton. Nordi Mukiele kom Sunderland snemma yfir en Dan Ballard fékk að líta rautt spjald þegar aðeins 24 mínútur voru liðnar á leikinn fyrir hártog. Santiago Bueno jafnaði fyrir Wolves snemma í síðari hálfleik og þar við sat.
Enski boltinn West Ham United Brentford FC Brighton & Hove Albion Newcastle United Sunderland AFC Wolverhampton Wanderers Mest lesið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Íslenski boltinn Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Körfubolti Fékk símtal frá Þorsteini í þetta sinn en er óviss um landsliðið Fótbolti Segir skot Dagnýjar á Breiðablik „pínu ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Íslenski boltinn Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai Enski boltinn „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Enski boltinn Raheem Sterling játar sök Enski boltinn Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Raheem Sterling játar sök Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Sjá meira