Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 1. maí 2026 22:52 Bandaríkjaher er með talsverða viðveru í Þýskalandi. Stærsta herstöð þeirra er í Ramstein. Getty Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur tilkynnt um afturköllun fimm þúsunda hermanna sinna frá Þýskalandi. Samkvæmt ónafngreindum embættismönnum stafar þetta af óánægju Bandaríkjaforseta vegna tregðu Þjóðverja við að taka þátt í árásarstríði sínu við Íran.
CBS greinir frá þessu og hefur eftir téðum embættismönnum að ráðstöfuninni sé ætlað að tjá gremju Donalds Trump Bandaríkjaforseta í garð evrópskra leiðtoga fyrir að hafa veitt jafnlitla aðstoð í stríði Bandaríkjanna og Ísraels við Írana og raun ber vitni. Trump hefur farið mikinn á samfélagsmiðlum undanfarna daga og gagnrýnt Friedrich Merz kanslara Þýskalands harðlega sem og aðra leiðtoga aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins. Í einum reiðilestra sinna sagði hann Merz standa sig hræðilega og að hann ætti við alls konar vandamál að stríða. Einnig velti hann því upp hvort hann ætti ekki að kalla hermenn í Ítalíu og á Spáni heim. Skýring gefin á bransamáli Bandaríkjaher er með umtalsverða viðveru í Þýskalandi og hefur haft alla tíð frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar. Rúmlega 36 þúsund bandarískir hermenn dvöldu á herstöðvum víðs vegar um landið í desember samkvæmt breska ríkisútvarpinu. Talsmaður varnarmálaráðuneytisins sagði í yfirlýsingu að skipunin hefði borist frá ráðherranum, Pete Hegseth. „Þessi ákvörðun er tekin í kjölfar ítarlegrar yfirferðar á viðbúnaðarstöðu ráðuneytisins í Evrópu og endurspeglar þarfir á vettvangi og aðstæður á jörðu niðri,“ hefur breska ríkisútvarpið eftir Sean Parnell talsmanni varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna. „Við gerum ráð fyrir að brottflutningnum verði lokið á næstu sex til tólf mánuðum.“ Öll þjóðin niðurlægð Leiða má líkur að því að ummæli sem Friedrich Merz kanslari lét falla í pallborðsumræðum með stúdentum í Marsberg fyrr í vikunni hafi ekki verið til þess fallin að lægja öldurnar. Þar sagði hann það meðal annars morgunljóst að Bandaríkjamenn hefðu engar áætlanir og að hann sæi enga leið út fyrir þá. „Íranir eru augljóslega mjög færir í samningaviðræðum, eða öllu heldur, mjög færir í að semja ekki, láta Bandaríkjamenn ferðast til Íslamabad og fara svo þaðan aftur án nokkurs árangurs,“ sagði hann. Hann sagði einnig alla bandarísku þjóðina niðurlægða af írönskum stjórnvöldum.
Bandaríkin Þýskaland Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Innlent Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Innlent Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Erlent Einn þeirra handteknu sautján ára Innlent Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Innlent Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Innlent Harður árekstur á Norðvesturlandi Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Fleiri fréttir Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan Sjá meira