Sport

Stofnandi LIV segir skilið við mótaröðina

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Yasir Al-Rumayyan er meðstofnandi LIV og stjórnarformaður mótaraðarinnar.
Yasir Al-Rumayyan er meðstofnandi LIV og stjórnarformaður mótaraðarinnar. Warren Little/Getty Images

Ríkissjóður Sádi-Arabíu mun hætta að fjármagna LIV mótaröðina og Yasir Al-Rumayyan, formaður ríkissjóðsins og stofnandi LIV, mun segja skilið við mótaröðina. Ný stjórn mun taka við því vonlitla verkefni að reyna að halda mótaröðinni áfram.

Hvíslað hefur verið um það síðustu tvær vikur að LIV mótaröðin muni láta niður laupana og hvíslið hefur sífellt orðið háværra.

Stórir miðlar á við Wall Street Journal og The Athletic hafa nú slegið því föstu að fjármagnið frá ríkissjóði Sádi-Arabíu muni hætta að streyma bráðlega. 

Ríkissjóðurinn hefur sett meira en fimm milljarða dollara í LIV mótaröðina og tapað rúmum milljarði dollara, samkvæmt BBC.

LIV mótaröðin hefur ekki staðfest tíðindin en fundur verður haldinn síðar í dag þar sem talið er að ný framtíðarsýn mótaraðarinnar verði kynnt.

Þar er búist við því að LIV muni tilkynna um breytingar í stjórninni. Sagt er að stjórnarformaðurinn og stofnandinn, Yasir Al-Rumayyan, sem er einnig formaður ríkissjóðsins, muni hætta og taka með sér mest allt fjármagn í leiðinni.

Samkvæmt heimildum The Athletic mun LIV mótaröðin tilkynna um nýja stjórn sem fær það verkefni að endurskipuleggja fjárhaginn. Talið er að það verði gert með því að selja lið til einkaaðila sem kæmu með fjármagn inn í mótaröðina.

Þá vaknar óvissa um hvað verður um kylfingana á LIV mótaröðinni. Stór nöfn á borð við Jon Rahn, Cameron Smith og Bryson DeChambeau höfnuðu því að snúa aftur á PGA mótaröðina í febrúar. Þeir vilja kannski endurskoða þá ákvörðun en það er ekki víst að PGA bjóði þeim tækifærið aftur.

Enn frekari óvissa er svo uppi um aðrar íþróttir sem ríkissjóður Sádi-Arabíu hefur fjárfest í síðustu ár. Fótbolti, hnefaleikar, Formúla 1 og tennis hafa notið vinsælda þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×