Tvíburar héldu sínum liðum á lífi Ágúst Orri Arnarson skrifar 30. apríl 2026 07:35 Thompson tvíburarnir stigu upp þegar þörf var á því. getty Tvö lið mættu með bakið upp við vegg í úrslitakeppni NBA deildarinnar í nótt en til allrar hamingju fyrir þau áttu Thompson tvíburarnir algjöra stórleiki.
Houston Rockets voru 3-0 undir gegn Los Angeles Lakers en unnu annan leikinn í röð í nótt, 99-93, og hafa minnkað muninn í einvíginu niður í 3-2. Deildarmeistarar austursins, Detroit Pistons, voru 3-1 undir gegn Orlando Magic en náðu að minnka muninn niður í 3-2 með 116-109 sigri í nótt. Í báðum sigurliðum var tvíburi að nafni Thompson sem átti sannkallaðan stórleik. Þeir voru góðir sóknarlega en alveg sérstaklega öflugir í vörninni. The Thompson Twins tonight...😤 Both forced Game 6s😤 Both showcased their all-around gamesAMEN: 15 points, 7 boards, 4 dimes, 4 stealsAUSAR: 15 boards, 6 assists, 5 steals, 2 blocks pic.twitter.com/iAjh6OoRks— NBA (@NBA) April 30, 2026 Amen Thompson skilaði 15 stigum á töfluna fyrir Houston Rockets og stal boltanum líka fjórum sinnum af leikmönnum Lakers. Hann skoraði mikilvæg vítaskot undir lok leiks og svo gott sem tryggði sigurinn. Ausar Thompson tók 15 fráköst fyrir Detroit Pistons og stal boltanum fimm sinnum ásamt því að verja tvö skot frá leikmönnum Magic. Hann var besti varnarmaður vallarins og átti stóran þátt í sigrinum. "It was something a little more... it was aggressive."The Thompson Twins both BROUGHT IT with their seasons on the line!22 combined boards 🔥9 combined steals 🔥2 combined wins 🔥 https://t.co/OtjmMz2Le6 pic.twitter.com/oeojWhpzie— NBA (@NBA) April 30, 2026 Paolo Banchero (Magic) og Cade Cunningham (Pistons) voru þó vafalaust bestir í sókninni, báðir með 45 stig fyrir sín lið. Magic mun fá annað tækifæri til að slá deildarmeistara Detroit Pistons úr leik á morgun, með sigri þar myndu Pistons knýja fram oddaleik.
NBA Mest lesið Kókaínnotkun næringarfræðingsins um að kenna að boxarinn féll Sport Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Handbolti Synti yfir Eystrasaltið í 56 tíma án þess að stoppa Sport Rifu sig upp eftir vonbrigðin í gær og unnu Frakka eftir rosa endasprett Handbolti Kallar eftir afsögn Infantino og skaut á Blatter Fótbolti „Það voru pollar út um allt, þetta var vægast sagt slæmt“ Golf Markvörður Breiðabliks spilaði sem útileikmaður Íslenski boltinn Valur í brekku: „Ýtum öllu sem er í gangi til hliðar“ Íslenski boltinn Toney ákærður fyrir líkamsárás á skemmtistað Fótbolti Þakkar FIFA fyrir greiðslu sem birtist allt í einu eftir gagnrýnina Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Rebekka með 31 stig í góðum sigri á Portúgal NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Náðu ekki að halda í við heimaliðið í fyrsta leik EM Strákarnir spila um fimmtánda sætið Misstu Svisslendingana frá sér á hræðilegum lokamínútum LeBron framleiðir „Last Dance“ heimildarþætti Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Milka farinn frá Njarðvík Birmingham stigahæstur í þriðja sigri strákanna KR heldur áfram að sækja leikmenn frá Lettlandi Martin áfram í Berlín Nýr leikmaður Tindastóls féll á lyfjaprófi þegar hann spilaði í G-deild NBA Keflvíkingar semja við Litáa og Stólarnir fá Bandaríkjamann Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum Sjá meira