Golf

Til­vistar­kreppa LIV-mótaraðarinnar heldur á­fram

Kjartan Kjartansson skrifar
Scott O'Neill, forstjóri LIV, með pútter í hönd á LIV-móti í Sádi-Arabíu fyrr á þessu ári. Sádar virðast undirbúa að taka vasapeningana af LIV á allra næstunni.
Scott O'Neill, forstjóri LIV, með pútter í hönd á LIV-móti í Sádi-Arabíu fyrr á þessu ári. Sádar virðast undirbúa að taka vasapeningana af LIV á allra næstunni. AP/Charles Laberge/LIV Golf

Móti LIV-golfmótaraðarinnar í Lúisíana í Bandaríkjunum hefur verið frestað og óvíst er hvort af því verði. Talið er að sádiarabískir bakhjarlar mótaraðarinnar ætli að ætta að halda henni uppi á næstunni.

Forsvarsmenn LIV og Lúisíanaríkis staðfestu að mótinu sem átti að fara fram í New Orleans síðustu helgina í júní hefði verið frestað og unnið væri að því að finna því nýjan tíma. AP-fréttastofan segir að þeir hafi þó ekki gengið svo langt að fullyrða að mótið færi fram.

Eftir að tilkynnt var um frestunina hélt LIV því fram að ákvörðunin hefði meðal annars verið tekin til þess að forðast sumarhita í Lúisíana á þessum árstíma. Golf Digest segir að mótaröðin hafi lagt til að halda mótið í haust en minna í sniðum og með takmarkaðan fjölda keppenda.

Tíðindin koma fast á hæla frétta í síðustu viku um að þjóðarsjóður Sádi-Arabíu ætli sér að hætta að fjármagna LIV. Slúðrað var um að keppni á mótaröðinni gæti jafnvel stöðvast á miðju tímabili en Scott O'Neill, forstjóri LIV, fullvissaði kylfinga og starfsfólk um að tímabilið yrði klárað.

Tilkynnt var um LIV-mótið í New Orleans í fyrra. Ríkisyfirvöld skuldbundu sig þá til þess að greiða LIV fimm milljónir dollara og fjármagna endurbætur á Batou Oaks-vellinum þar sem mótið átti að fara fram. Ríkið hafði þegar greitt LIV milljón dollara sem verða nú endurgreiddir.

Hallað hratt undan fæti

O'Neill hefur talað um að jafnvel þó að Sádar hætti að fjármagna LIV muni hún halda göngu sinni áfram. Hann ætli að leita nýrra fjárfesta. Sú leit gæti reynst þrautin þyngri enda er rekstur LIV langt frá því að vera sjálfbær. Hann hefur sjálfur sagt að það gæti tekið áratug fyrir hana að skila hagnaði.

Sádar stofnuðu LIV til höfuðs PGA-mótaröðinni árið 2021 og löðuðu nokkra af helstu stjörnum golfsins til sín með boði um gull og græna skóga. Um tíma stóð til að LIV, PGA-mótaröðin og evrópska DP-mótaröðin rynnu saman en ekkert varð úr því.

Áhorf á mótaröðina hefur verið afar takmarkað, bæði í sjónvarpi og á keppnisvöllunum sjálfum, ef frá eru talin mót í Ástralíu og Suður-Afríku sem hafa verið vel sótt.

Verulega hefur fjarað undan LIV á síðustu árum. Nokkrar af helstu stjörnunum eru teknar að reskjast og enginn kylfingur á heimsmælikvarða hefur skipt yfir frá því að Jon Rahm gerði það óvænt árið 2023. 

Mótaröðin varð svo fyrir blóðtöku þegar risamótsmeistararnir Brooks Koepka og Patrick Reed sneru aftur á PGA-mótaröðina fyrr á þessu ári.

Til að bæta gráu ofan á svart hefur ekkert gengið að endurnýja samning LIV við Bryson DeChambeau, einn vinsælasta kylfing heims. Ólíklegt er að O'Neill takist að finna fjárfesti sem er til í að fjármagna nýjan risasamning við DeChambeau á mótaröð sem ber sig ekki fjárhagslega án sádiarabískra olíupeninga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×