Evrópskt stórlið með augu á Degi Valur Páll Eiríksson skrifar 29. apríl 2026 11:02 Dagur þjálfar króatíska landsliðið en hefur ekki stýrt félagsliði í ellefu ár. Vísir/Vilhelm Dagur Sigurðsson er meðal þjálfara á blaði hjá pólska stórliðinu Industria Kielce sem leitar eftirmanns Talant Dujshebaev.
Dujschebaev hætti óvænt sem þjálfari Kielce fyrr í mánuðinum eftir heil tólf ár í starfi sem þjálfari liðsins. Hann raðaði inn titlum í Póllandi en liðið varð níu sinnum pólskur meistari undir hans stjórn, síðast 2023, vann bikarinn sjö sinnum og Meistaradeildina árið 2016. Dujshebaev tók þá við franska landsliðinu í febrúar síðastliðnum og mun stýra liðinu á komandi heimsmeistaramóti í janúar næstkomandi. Haukur Þrastarson lék undir hans stjórn hjá Kielce árin 2020 til 2024. Krzysztof Lijewski tók við af Dujshebaev á dögunum og stýrir liðinu út leiktíðina. Það veltur á árangri næstu vikna hvort hann fái að halda því starfi áfram en samkvæmt umboðsmanninum Hen Livgot eru forráðamenn félagsins með augu á erlendum þjálfurum til að taka við. Dagur Sigurðsson, þjálfari króatíska landsliðsins, er þar á lista en Dagur hefur ekki stýrt félagsliði síðan hann hætti með Fucshe Berlín árið 2015. Hann þjálfaði þýska landsliðið 2014 til 2017, Japan frá 2017 til 2024 og tók þá við Króötum. Króatar hlutu silfur undir hans stjórn á HM 2025 og brons á EM í janúar síðastliðnum eftir sigur á íslenska landsliðinu í leiknum um þriðja sætið. Auk Dags eru Slóveninn Uros Zorman, Króatinn Ivan Cupic og Þjóðverjinn Jaron Siewert sagðir á lista Kielce.
Pólski handboltinn Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Sport Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Sjá meira