Gerði umdeilda skiptingu: „100 prósent pirraður og ég skil hann vel“ Valur Páll Eiríksson skrifar 28. apríl 2026 09:31 Jóhannes Karl segir skiptinguna óheppilega, en hafi verið nauðsynlega. Vísir/Anton Brink Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, býst við því að Kristján Snær Frostason, leikmaður liðsins, sé ósáttur við að hafa verið skipt af velli, eftir að hafa áður komið inn af bekknum í 4-2 tapi fyrir KR í gær.
Hinn tvítugi Kristján Snær kom inn af varamannabekknum í hálfleik fyrir Grétar Snæ Gunnarsson sem var á gulu spjaldi. Kristján fékk það verkefni að takast á við Amin Cosic, sem átti stjörnuleik, og hafði aðeins verið á vellinum í fimm mínútur þegar hann fékk gult spjald, á 50. mínútu leiksins. Hann var einn fjögurra leikmanna FH sem spilaði hægri bakvörð á einhverjum tímapunkti í leik gærkvöldsins en engum þeirra fjögurra tókst almennilega að eiga við eldsnöggan Cosic. Kristjáni var svo skipt af velli á 70. mínútu fyrir Kára Kristjánsson, og hafði þá aðeins verið á vellinum í 25 mínútur. Árni Jóhannsson var maður Vísis á staðnum og spurði Jóhannes Karl út í skiptinguna eftir leik: „Mér fannst Kristján koma inn með ákefð og grimmd en ég þurfti líka að gera breytingu í fyrri hálfleik og svissa bakvörðum. Amin Cosic var að gera okkur lífið leitt. Við setjum Kristján inn á í seinni til að stoppa hann. Hann fékk gult snemma og það hefði verið hræðilegt fyrir okkur að missa hann af velli. Við ákváðum bara að gera þessa breytingu. Það er erfitt að koma inn á og vera tekinn út af. Það hafði ekkert með frammistöðu hans að gera.“ Var Jóhannes búinn að ræða við Kristján? Skilur hann ákvörðunina? „Ég vona það. Auðvitað verður hann drullu pirraður út í mig. Það er ekki nokkur spurning. Svona eru bara þessi erfiðu móment í fótbolta og ég veit að Kristján verður mættur á æfingu á morgun og klár í slaginn en 100 prósent pirraður og ég skil hann vel,“ segir Jóhannes Karl.
FH Besta deild karla Íslenski boltinn Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira