Körfubolti

KKÍ horfir til fram­tíðar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Alexandra Cruz Buenano, teymisstjóri Origo, Árni Geir Valgeirsson, forstjóri Origo, Kristinn Albertsson, formaður KKÍ, og Hannes S.Jónsson framkvæmdastjóri KKÍ
Alexandra Cruz Buenano, teymisstjóri Origo, Árni Geir Valgeirsson, forstjóri Origo, Kristinn Albertsson, formaður KKÍ, og Hannes S.Jónsson framkvæmdastjóri KKÍ mynd/kkí

Körfuknattleikssamband Íslands, KKÍ, og Origo hafa undirritað samstarfssamning um stafrænar lausnir körfuboltans á Íslandi.

Samstarfið felur meðal annars í sér þróun nýrrar vefsíðu KKÍ sem mun bæta aðgengi að upplýsingum og styrkja miðlun efnis til mismunandi notendahópa. Jafnframt verður unnið að því að einfalda lykilferla innan hreyfingarinnar, svo sem með mínum síðum og rafrænum félagaskipti sem gera ferlið skilvirkara og gagnsærra fyrir félög og leikmenn segir meðal annars í fréttatilkynningu.

Unnið verður markvisst að því að bæta yfirsýn og flæði upplýsinga innan hreyfingarinnar þannig að samskipti verði einfaldari og rekstur hagkvæmari. Þannig leggja KKÍ og Origo grunn að lausnum sem nýtast til lengri tíma og styðja við áframhaldandi uppbyggingu íþróttarinna segir enn fremur í tilkynningunni.

Með þessu er KKÍ að horfa til framtíðar og formaðurinn er ánægður með samninginn.

„Körfuboltinn á Íslandi byggir á öflugu starfi félaga, sjálfboðaliða og samfélagsins alls. Með þessu samstarfi tökum við stórt skref í átt að einfaldari og skilvirkari rekstri þar sem tæknin styður betur við alla sem koma að íþróttinni. Markmiðið er að gera upplýsingar aðgengilegri, bæta yfirsýn og skapa betri upplifun fyrir iðkendur, félög og áhorfendur,“ segir Kristinn Albertsson, formaður KKÍ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×