Handbolti

Elvar og fé­lagar luku tíma­bilinu með sigri

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Elvar Ásgeirsson kom með beinum hætti að átta mörkum gegn Nordsjælland.
Elvar Ásgeirsson kom með beinum hætti að átta mörkum gegn Nordsjælland. getty/Sanjin Strukic

Ribe-Esbjerg vann stórsigur á Nordsjælland, 37-27, í fallriðli dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í dag. Elvar Ásgeirsson lék vel í liði Ribe-Esbjerg.

Leikurinn í dag var sá síðasti á tímabilinu hjá Ribe-Esbjerg. Liðið fékk átta stig í fallriðlinum.

Elvar skoraði fjögur mörk úr sex skotum í leiknum í dag. Mosfellingurinn gaf einnig fjórar stoðsendingar.

Ribe-Esbjerg var fimm mörkum yfir í hálfleik, 20-15, og bætti enn frekar í eftir hlé.

Elvar gekk í raðir Ribe-Esbjerg fyrir fjórum árum. Hann er samningsbundinn félaginu til 2028.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×