„Einvígið fer ekki á einum manni“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 24. apríl 2026 22:08 Björgvin Páll var öflugur í kvöld. vísir/Diego Björgvin Páll Gústavsson, markvörður Vals, var sáttur með sigur í fyrsta leik gegn FH í einvígi liðanna um Íslandsmeistaratitilinn. Lokatölur 37-33 í N1-höllinni.
Björgvin Páll segir Vals liðið hafa farið leikinn á orkunni og væri nóg á tanknum hjá liðinu. „Við stillum okkur aðeins af varnarlega, en svo erum við líka með ansi mikla orku. Við getum spilað fjóra leiki í viðbót hérna í kvöld. Við erum bara í geggjuðu standi og svo kveikti Strætóskýlið í okkur, okkar stuðningsmannasveit. Ég er þakklátur fyrir það. Orkan í húsinu var mikil og góð og við tókum hana með okkur.“ Björgvin Páll gaf lítið fyrir að um vendipunkt hafi verið um að ræða þegar Jóni Bjarna Ólafssyni, lykilmanni í liði FH, var vikið af velli með rautt spjald í upphafi síðari hálfleiks. Í kjölfar þess brenndi FH af tveimur dauðafærum á meðan Valur gekk á lagið og myndaði sér góða forystu með auðveldum mörkum sem skiluðu sér á endanum í því að sigur hafðist fyrir Hlíðarendapilta. „Það má tala um vendipunkt þar og þið munuð örugglega tala um vendipunkt um þetta rauða spjald í viðtölum, en hann klúðraði ekki þessum tveimur skotum í framhaldinu. Einvígið fer ekki á einum manni, ég ætla að vona ekki allavega.“ „Þeir eru bara með endalaust af góðum mönnum sem geta bakkað hann upp, eru með tvo aðra línumenn, það er enginn afsökun fyrir þá. Þeir minnka aðeins róteringuna hjá sér og við göngum bara á lagið. Við vitum hvað við erum góðir og sýndum hraðann okkar í dag og hann verður bara hraðari og hraðari þegar lengra líður á einvígið.“ Björgvin Páll segir frammistöðuna í leiknum vera gott veganesti í næsta leik sem fram fer í Kaplakrika á mánudaginn. „Þetta er mjög gott veganesti, sér í lagi þar sem við erum í vandræðum í leiknum. Við erum í vandræðum í fyrri hálfleik. Ég tek langan kafla þar sem ég ver ekki neitt, en samt vinnum við. Þetta verður líklega langt einvígi en hver leikur er 60 mínútur og við ætlum bara að skila því í hús hverju sinni.“
Olís-deild karla Valur FH Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sjá meira