Borgarleikhúsið sviptir hulunni af Trölla Magnús Jochum Pálsson skrifar 24. apríl 2026 10:27 Björgvin Franz mun leika Trölla í söngleiknum Þegar trölli stal jólunum sem fer á svið í Borgarleikhúsinu í nóvember. Íris Dögg Einarsdóttir Borgarleikhúsið hefur svipt hulunni af því hver mun fara með hlutverk Trölla í fjölskyldusöngleiknum Þegar Trölli stal jólunum, sem verður frumsýndur á Stóra sviðinu í nóvember næstkomandi, en það er enginn annar en Björgvin Franz Gíslason.
Söngleikurinn Þegar Trölli stal jólunum er byggður á samnefndri barnabók Dr. Seuss frá árinu 1957. Sagan segir frá hinum einmana Trölla sem þolir ekki jólin en í næsta nágrenni halda menn þau hátíðleg með pompi og prakt. Eitt árið fær Trölli nóg og ákveður að stela jólunum. Sagan hefur verið aðlöguð að skjánum margs sinnis en þekktasta aðlögunin er kvikmyndin How the Grinch stole Christmas (2000) með stórstjörnunni Jim Carrey í hlutverki Trölla. Björgvin Franz er íslendingum að góðu kunnur, hann hefur lengi verið einn fremsti leikari þjóðarinnar. Hann fer um þessar mundir með hlutverk Elsu Lund í Þetta er Laddi og Tinkarlsins í Galdrakarlinum í Oz og fór með eitt af aðalhlutverkunum í Elly sem gekk í fjögur leikár. Björgvin Franz er spenntur að leika Trölla.Íris Dögg Einarsdóttir „Ég hef oft verið heppinn með hlutverk en almáttugur, Trölli sjálfur! Mig hefur dreymt um þetta hlutverk síðan ég sá myndina með Jim Carrey á sínum tíma en Dóra dóttir mín horfði á myndina allan sólarhringinn í nokkur ár, líka á sumrin,“ segir Björgvin Franz sem hefur sjaldan verið jafn spenntur fyrir jólunum og nú. Björgvin Franz mun nú feta í fótspor leikara á borð við Jim Carrey, Boris Karloff og Stefán Karl Stefánsson, sem fóru allir með hlutverk Trölla, ýmist á skjánum eða á sviði. Á sínum tíma kom næstum því til þess að Björgvin tæki við hlutverkinu af Stefáni Karli. „Stefán Karl heitinn vinur minn og snillingur lék þetta hlutverk á Broadway-túrnum á sínum tíma og þótti einn besti Grinch sem sést hefur vestanhafs. Þegar hann var búinn að leika hlutverkið í nokkur ár langaði hann svo að ég myndi taka við og hann myndi leikstýra mér en því miður kom ekki til þess. En núna hefur draumurinn ræst og ég þakka Stefáni Karli bak við tjöldin,“ segir Björgvin. Valur Freyr og Björgvin Franz grínast saman.Íris Dögg Einarsdóttir Leikstjórn sýningarinnar verður í höndum Vals Freys Einarssonar. Auk Björgvins verða í aðalhlutverkum þeir Hilmir Jensson sem sögumaður og Pétur Ernir Svavarsson sem hundurinn Max. Í öðrum hlutverkum verða Björn Stefánsson, Esther Talía Casey, Halldór Gylfason, Sigrún Edda Björnsdóttir og Þórunn Arna Kristjánsdóttir. Dansarar sýningarinnar eru Birna Karlsdóttir, Björn Dagur Bjarnason, Gabriel Marling Rideout, Karen Sif Kamgan, Karitas Lotta Tulinius og Rúnar Bjarnason. Auk þessa góða leik- og danshóps mun stór barnahópur vera með í sýningunni og skráðu yfir 1100 börn sig í leikprufurnar, sem fara fram í maí.
Leikhús Borgarleikhúsið Hollywood Mest lesið Borgarleikhúsið sviptir hulunni af Trölla Menning Varð að vera flottastur í eigin teiti Tíska og hönnun Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Lífið Hvað veistu um... Tenerife? Lífið Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Lífið Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Lífið Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Lífið Villi vandræðaskáld valinn bæjarlistamaður Akureyrar Menning Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Lífið Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Lífið Fleiri fréttir Borgarleikhúsið sviptir hulunni af Trölla Villi vandræðaskáld valinn bæjarlistamaður Akureyrar Ævar Þór, Birna og Jón hlutu Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar „Hugur manns í þunglyndi er eineltishrotti“ Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Hafnfirðingar vinna að sýningu um Bó Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Settu tærnar upp í loft og fengu knús Hatari hættir í Þjóðleikhúsinu og breytingar í Borgó „Ekki viss hvort ég sé að skrifa minningargrein eða kveðjubréf“ Sjötugur Haukur Holm kveður fréttamennskuna Raðvændiskaupandi dæmir ekki á Íslandi eftir allt saman Pétur Marteinn Páll Urbancic er látinn Edda tryllti gesti óvænt með Ladda Framtíð Mengis óráðin þó eignin sé til sölu Hjálmar H. Ragnarsson er látinn Fá rödd Guðna lánaða Hundrað þúsund bóka múrnum rústað á Bókamarkaðnum Fræjum framtíðar sáð í gamlar bókasafnsbækur Gjöfull trekantur Þessi hljóta tilnefningu til Myndlistarverðlauna Ástin blómstraði á sýningu Tolla Sjá meira