Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Rakel Sveinsdóttir skrifar 23. apríl 2026 07:01 Eftir að Marel keypti nýsköpunarfyrirtækið Valka vildi Helgi Hjálmarsson, stofnandi Völku, bæta sig í golfi. En fannst árangurinn nokkuð hægfara. Helgi er einn stofnenda Elva Golf sem mælir, greinir og leiðbeinir kylfingum um líkamshreyfingar eins og sveiflu og fleira í golfinu. Vísir/Vilhelm Við elskum flest velgengnissögur. Eins og til dæmis það að Marel hafi hér um árið keypt hátæknifyrirtækið Völku; nýsköpunarfyrirtæki sem framleiðir fiskvinnslulausnir fyrir alþjóðamarkað.
Kaupverðið var sagt vel á sjötta milljarð en einn stofnenda Völku hafði áður starfað hjá Marel, starfaði þar líka um sinn eftir söluna en er í dag einn af stofnendum ELVA Golf. ELVA Golf er að þróa hátæknibúnað sem kylfingar geta notað, án þess að þurfa sérstakan sérfræðing til að festa alls kyns merki og skynjara, til að mæla sveifluna með mikilli nákvæmni og hjhjálpaannig kylfingum að bæta sig hraðar. „Valka var stofnað árið 2003 og sama ár eignaðist ég tvíbura. Golfið fór því til hliðar um tíma en eftir að Valka var selt fór ég á ný að spila meira,“ segir Helgi Hjálmarsson, stofnandi Völku og einn stofnenda ELVA Golf. „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri en fannst framþróunin ganga heldur hægt,“ segir Helgi og brosir. Af því leiddi samtal á milli Helga og gamals vinar, golffélaga og golfkennara, Arnars Más Ólafssonar. „Við Arnar byrjuðum að spila golf saman 11 ára,“ segir Helgi og bætir við að í þessu samtali þar sem hann kvartaði undan því hversu seinlega honum fannst árangurinn vera að skila sér með golfæfingum, segir hann við Arnar: „Við hljótum að geta nýtt tæknina eitthvað betur fyrir þetta. Getum við ekki reynt að búa eitthvað til svo þjálfunin geti gengið hraðar fyrir sig?“ Innovation Week Iceland verður haldin í næstu viku, þar sem nýsköpun er til umræðu og kynnt með alls kyns viðburðum, fyrirlestrum, kynningum og fleiru frá morgni til kvölds dagana 27.–30. apríl, sjá dagskrá HÉR. Í tilefni Innovation Week fjallar Atvinnulífið um nýsköpun í gær og í dag. Að verða betri í golfi ELVA Golf var stofnað í febrúar 2023. Stofnendur eru auk Helga: golfkennararnir Arnar Már Ólafsson og Grétar Eiríksson, Jaldert Rombouts tæknistjóri, Eyrún Arna Eyjólfsdóttir gervigreindarsérfræðingur og Dr. Rob Neal frumkvöðull og rannsakandi. „Golfið er erfið íþrótt í eðli sínu. Enda gengur það út á að samhæfa margar hreyfingar,“ segir Helgi og bætir við: „Fólki gengur því misvel í golfi og þótt fólk sé duglegt og einbeitt að æfa sig skilar það ekki alltaf miklum árangri“ Helgi og Arnar byrjuðu þó ekki á því að ræða hugmynd um búnað sem gæti hjálpað fólki að ná árangri. Heldur byrjuðu þeir á því að leita og skoða hvað væri til af hjálpartækjum á markaðinum. „Í stuttu máli kom í ljós að til þess að fá almennilega mælingu eða greiningu á því hvernig líkaminn er að hreyfa sig í golfi þurfti sérfræðing eins og Rob Neal til að framkvæma ákveðnar mælingar,“ segir Helgi og bætir við: „Þegar ELVA Golf varð til hafði Rob Neal þá þegar mælt hreyfingu golfara í um tuttugu ár með skynjaratækni, enda brautryðjandi á sínu sviði.“ Eitt leiddi af öðru og nú er svo komið að lausnin ELVA Golf er orðin að veruleika. Með ELVA Golf er líkaminn myndaður með nokkrum myndavélum í rauntíma, án þess að kylfingurinn sé með einhvern búnað á sér til að mæla sveifluna eða hreyfinguna. ELVA Golf greinir hvernig kylfingurinn hreyfir sig og leiðbeinir síðan hvernig hægt er að bæta sig. Sem þýðir að ELVA Golf er að hjálpa bæði kylfingum og golfkennurum. Öllum sem vilja þjálfa sig í golfi til að verða betri. „Búnaður ELVA Golf er nú þegar í notkun hjá Golfklúbbi Garðabæjar, í Golfklúbbi Mosfellsbæjar og í Golfhöllinni. Erlendis er ELVA Golf í notkun í Flórída og í Minnesota,“ segir Helgi og markmiðið er skýrt: Við ætlum okkur að verða staðalbúnaður bestu kylfinga í heimi. Því það mun skila því að allir aðrir kylfingar munu vilja nota ELVA Golf.“ Arnar Már Ólafsson golfkennari er einn stofnenda en það sem gerir Elva Golf svo sérstakt sem lausn er að til þess að greina líkamshreyfingar kylfinga, þarf ekki að festa á kylfinginn fullt af skynjurum. Elfa Golf myndar líkamann og metur í þrívídd. Elva Golf Einkaleyfi í heiminum Golfhermirinn var auðvitað bylting á sínum tíma, segir Helgi. Ekki síst á Íslandi þar sem golfið náði þá að breytast úr nokkurra mánaða sumarsporti yfir í íþrótt sem fólk getur stundað allan ársins hring. Helgi segir golfherminn því skipta miklu máli þegar kemur að þjálfun og æfingu en Elva Golf er búnaður til viðbótar við herminn, því með ELVA Golf er verið að nýta gervigreindina til að mæla, greina og meta hreyfingar líkamans og leggja til umbætur og þjálfunarleiðir til að verða betri. Verandi frumkvöðull sem áður hefur farið í gegnum sprotastig og upphaf nýsköpunar er gaman að taka spjallið við Helga um breytingar og þróun í áranna rás. „Gervigreindin sem slík er til dæmis að auka á allan hraða. Þeir sem ekki nýta sér þessa tækni eru því líklegir til að sitja eftir í allri þróun,“ segir Helgi. Sem segir umhverfi nýsköpunar á Íslandi líka einstaklega gott. Helgi nefnir þar bæði Tækniþróunarsjóð og háskólasamfélagið. „Þetta umhverfi var til staðar þegar Valka var stofnað en hefur breyst og þróast mjög mikið síðan þá. Eitt af því sem er til dæmis mjög gott í dag er samstarfið á milli KLAK og Tækniþróunarsjóðs,“ nefnir Helgi sem dæmi. ELVA Golf hefur fengið styrkinn Sproti hjá Tækniþróunarsjóði og nýtir sér einnig endurgreiðslur Rannís fyrir rannsóknar- og þróunarkostnað. Klukkan 15 fimmtudaginn 30.apríl í Austurbæ verður einmitt einn viðburður á Innovation Week með ýmsum nýsköpunarfyrirtækjum á sviði íþrótta þar sem þessi mál verða án efa rædd. Dr. Rob Neal er þekktur brautryðjandi sem rannsakandi um líkamshreyfingar kylfinga og einn stofnenda Elva Golf. Sem nú er í notkun á tveimur stöðum í Bandaríkjunum og hjá Golfklúbbi Garðabæjar, í Golfklúbbi Mosfellsbæjar og í Golfhöllinni. Vísir/Vilhelm, Elva Golf Með Hugverkastofunni gekk Elva Golf frá skráningu vörumerkis og umsóknum einkaleyfa, sem Helgi hefur mikið nýtt sér í gegnum tíðina. „Ég hef eflaust sótt um allavega tíu einkaleyfi,“ útskýrir Helgi. „Þegar fólk sækir um einkaleyfi er gott að byrja á því að sækja um eins víðfeðmt leyfi og hægt er. Þrengja þá frekar lýsinguna eins og þarf því það eitt og sér að fá einkaleyfi hefur svo mörg góð áhrif,“ segir Helgi og nefnir sem dæmi: „Til dæmis hefur einkaleyfi fælingarmátt, það eru minni líkur á að einhver reyni að fara að gera það sama og þú.“ Eitthvað sem svo sannarlega getur skipt sköpum í heimi nýsköpunar. Nú fæddist hugmyndin, ef svo má segja, sem hvatning til að gera þig betri í golfi. Er það að takast með ELVA Golf? „Já já, engin spurning,“ segir Helgi og hlær. „Þetta svona mjakast hjá mér þannig að ég er á réttri leið.“
Tækni Nýsköpun Golf Tengdar fréttir Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Ástríðan skín úr augunum. Eldur brennur þegar talað er. Í raun er ekki hægt annað en að smitast af gleðinni. Eldmóðnum. 22. apríl 2026 07:01 Vikan sem vex og vex: „Magatilfinningin er jafnvel mikilvægust“ „Í fyrsta lagi myndi ég segja fólki að tala um hugmyndina sína við einhvern. Sem oft er erfiðast en mjög gott fyrsta skref. Enda allt annað að byggja eitthvað upp einn og lokaður af,“ segir Edda Konráðsdóttir stofnandi Innovation Week sem nú stendur yfir. 14. maí 2025 07:02 Bissnessinn í tónlist: „Þetta er ekki lengur eins og þetta var í gamla daga“ Það er ákveðinn stjörnuljómi sem fylgir spjallinu við Soffíu Kristínu Jónsdóttur framkvæmdastjóra og eiganda Iceland Sync. Enda gefur hún okkur innsýn í heljarinnar starfsemi á bakvið tjöldin; Hvernig hlutirnir ganga fyrir sig hjá fræga fólkinu. 16. júní 2025 07:00 „Já veistu Gummi, þetta gæti verið eitthvað“ „Það hafði lengi blundað í mér að stofna mitt eigið fyrirtæki. En alltaf þegar ég nefndi einhverja hugmynd við Þóru konuna mína, svaraði hún: Nei, ég held að þetta sé ekki málið,“ segir Guðmundur Kristjánsson stofnandi Lucinity og hlær. 15. maí 2025 07:04 Að endurskapa ásýndina á að vera skemmtileg vinna en ekki kvöð „Við vinnum mikið með fyrirtækjum sem eru þriggja ára og eldri. Þó enn startup fyrirtæki en oft eru þau kominn á þann stað þegar okkar vinna hefst, að þau vilja þvo af sér þennan sprotastimpil,“ segir Helga Ósk Hlynsdóttir hjá SEROUS.BUSINESS í München, Þýskalandi. 9. maí 2024 07:01 Mest lesið Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Fleiri fréttir Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Hagkvæmt að ráða krabbameinssjúklinga í vinnu Húsið sem næstum gleymdist: „Eins og kýlt í hjartað á mér“ Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Moldrík með ADHD: Hafa getuna til að horfa út fyrir boxið Satt eða logið: Nýjar áskoranir fyrir neytendur og auglýsendur „Ég var geggjuð skvísa, en það er ekki mér að þakka“ „Svona samtöl snúast ekki um að skamma fólk fyrir fjarvistir“ „Mér er drull um vinnustað sem er drull um mig“ Það er enginn aumingjaskapur að halda ekki fókus Er sjálf besti leikmaðurinn: „Ég þurfti að gúggla mörkin hans“ Það getur allt gerst ef forstjórinn vakir fram yfir klukkan tíu Réttu tækifærin opnuðust þegar sumarstarfsmaður var ráðinn sem sendill „Við erum meira að segja hætt að hlusta í tölvupóstum“ Eigum við að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina? „Annar er létt geggjaður og skemmtilegur og hinn alveg grjótharður“ Þegar óvissa vegna breytinga vofir yfir í langan tíma Atvinnumennskan í útlöndum: Tekjur, tækifæri og margir hattar á höfði Í meistaranámi án stúdentsprófs: Kennarar til í breytingar en tröllið segir Nei Forstjóri Nova: Ekkert betra en brakandi hrein rúmföt eftir gufuna Í röngu starfi og vansæl Samtalshermir til að æfa okkur fyrir erfiðu og viðkvæmu samtölin „Það veit enginn hvert þessar breytingar eru að leiða okkur“ „Það sem áður var sígó-pásan er nú jóga-pásan“ Sjá meira
Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Ástríðan skín úr augunum. Eldur brennur þegar talað er. Í raun er ekki hægt annað en að smitast af gleðinni. Eldmóðnum. 22. apríl 2026 07:01
Vikan sem vex og vex: „Magatilfinningin er jafnvel mikilvægust“ „Í fyrsta lagi myndi ég segja fólki að tala um hugmyndina sína við einhvern. Sem oft er erfiðast en mjög gott fyrsta skref. Enda allt annað að byggja eitthvað upp einn og lokaður af,“ segir Edda Konráðsdóttir stofnandi Innovation Week sem nú stendur yfir. 14. maí 2025 07:02
Bissnessinn í tónlist: „Þetta er ekki lengur eins og þetta var í gamla daga“ Það er ákveðinn stjörnuljómi sem fylgir spjallinu við Soffíu Kristínu Jónsdóttur framkvæmdastjóra og eiganda Iceland Sync. Enda gefur hún okkur innsýn í heljarinnar starfsemi á bakvið tjöldin; Hvernig hlutirnir ganga fyrir sig hjá fræga fólkinu. 16. júní 2025 07:00
„Já veistu Gummi, þetta gæti verið eitthvað“ „Það hafði lengi blundað í mér að stofna mitt eigið fyrirtæki. En alltaf þegar ég nefndi einhverja hugmynd við Þóru konuna mína, svaraði hún: Nei, ég held að þetta sé ekki málið,“ segir Guðmundur Kristjánsson stofnandi Lucinity og hlær. 15. maí 2025 07:04
Að endurskapa ásýndina á að vera skemmtileg vinna en ekki kvöð „Við vinnum mikið með fyrirtækjum sem eru þriggja ára og eldri. Þó enn startup fyrirtæki en oft eru þau kominn á þann stað þegar okkar vinna hefst, að þau vilja þvo af sér þennan sprotastimpil,“ segir Helga Ósk Hlynsdóttir hjá SEROUS.BUSINESS í München, Þýskalandi. 9. maí 2024 07:01