Baldvin á samningi hjá Nike: „Hélt ég myndi aldrei ná svona langt“ Aron Guðmundsson skrifar 22. apríl 2026 08:31 Baldvin Þór hefur verið að gera það mjög gott og árangur hans vakti athygli Nike. vísir/Getty Hlauparinn Baldvin Þór Magnússon skrifaði á dögunum undir sinn fyrsta atvinnumannasamning við Nike. Samningurinn gerir það að verkum að Baldvin getur haft hlaupin að atvinnu en fyrir ekki svo löngu síðan, eftir streð, íhugaði hann að draga saman seglin.
Samningur Baldvins við Nike gildir til næstu þriggja ára en um er að ræða fyrsta atvinnumannasamning hlauparans öfluga og segja má að frábært hlaup hans í Valencia í upphafi árs, þar sem Baldvin varð fyrsti Íslendingurinn í sögunni til að hlaupa tíu kílómetra á undir tuttugu og átta mínútum, hafi lokkað Nike að borðinu. „Þetta er búið að vera markmiðið hjá mér síðustu tvö til þrjú árin,“ segir Baldvin í samtali við íþróttadeild. „Ég er alltaf búinn að vera mjög nálægt því að einhver myndi vilja bjóða mér svona alvöru atvinnumannasamning. Að hafa það næstu þrjú árin, fram yfir Ólympíuleikana er alveg frábært. Hvað þá með Nike.“ Draumurinn síðustu ár Stóra markmiðið hjá Baldvini er einmitt að komast á Ólympíuleikana árið 2028 en framundan er EM í Birmingham í sumar en Baldvin vann sér inn sæti á mótinu með sínu frábæra hlaupi í Valencia. „Ég myndi segja að þetta sé draumamerkið. Ég var með fatasamning við H-verslun, sem er að flytja inn Nike vörur á Íslandi, í fyrra. Ástæðan var sú að mér finnst skórnir hjá Nike betri en allir aðrir skór. Ég get ekki sagt að þetta sé æskudraumur því ég hélt aldrei að ég myndi komast svona langt. En þetta hefur klárlega verið draumurinn síðustu árin.“ Var nálægt því að draga saman seglin Baldvin að ná eftirtektarverðum árangri til þessa í umhverfi þar sem hann hefur þurft að skrapa saman styrkjum hér og þar til þess að halda hlaupadraumnum á lífi. Núna hverfa þær áhyggjur en annars konar pressa kemur inn. Áhugamálið er orðið að atvinnu að fullu. „Ég hef alltaf þurft að pússla hverju ári saman með samstörfum og styrktaraðilum. Að hafa Nike með sér í liði núna gerir það að verkum að pússlið er nánast komið næstu þrjú árin. Ég myndi segja að í fyrra hafi ég verið smá tæpur á því, ef árið hefði ekki gengið mjög vel, að fara hætta gefa allt gjörsamlega hundrað prósent í þetta. Þetta getur verið atvinnan næstu árin.“
Frjálsar íþróttir Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Átta rauð spjöld í sama leiknum Fótbolti Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi? Sport Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Fleiri fréttir Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Wembanyama sleppur við refsingu Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Átta rauð spjöld í sama leiknum Steinar áfram hjá Ármanni Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi? Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Hamar og Þór hætta samstarfi Benedikt verður lærisveinn Arnórs Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Martin í úrvalsliðinu Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen Sjá meira