Þetta segir fundargerð ESB frá 18. desember 2012 um aðlögun Erna Bjarnadóttir skrifar 19. apríl 2026 16:04 Í opinberri fundargerð ráðs Evrópusambandsins frá 18. desember 2012 er gerð grein fyrir stöðu aðildarviðræðna Íslands. Auk fulltrúa aðildarríkja ESB sat íslensk sendinefnd undir forystu þáverandi utanríkisráðherra fundinn. Í fundargerðinni kemur skýrt fram að framvinda viðræðnanna byggist á því að Ísland nái framförum í aðlögun að regluverki sambandsins og innleiðingu þess. Í fundargerðinni er jafnframt rakið að til þess að unnt sé að loka einstökum samningsköflum þurfi að uppfylla tiltekin skilyrði. Þau lúta meðal annars að því að löggjöf sé samræmd regluverki sambandsins og að sýnt sé fram á að íslensk stjórnsýsla hafi bæði mannauð og kerfislega getu til að framfylgja því í framkvæmd. Kröfur um aðlögun í fundargerðinni Taka má skýr dæmi um kröfur ESB til aðlögunar Íslands á meðan viðræður um einstaka kafla standa yfir, eftir formlega opnun þeirra á fundinum. Í kafla um skattamál er sett fram krafa um að Ísland sýni fram á stjórnsýslugetu til að innleiða regluverk ESB og að lögð verði fram heildstæð stefna um uppbyggingu tæknilegra innviða. Í kafla 17 um efnahags- og peningamál er krafist lagabreytinga sem tryggja sjálfstæði Seðlabanka Íslands og aðlögunar að regluverki ESB um tengingu við Evrópska seðlabankakerfið. Varðandi kafla 22 um byggðamál er þess krafist að Ísland setji upp stjórnsýslukerfi til að framkvæma stefnu ESB á sviði byggðamála, leggi fram áætlanir og skipulag fyrir framkvæmd stefnunnar og hanni upplýsingakerfi sem styðji slíka framkvæmd. Öll þessi skilyrði lúta að lagasetningu, stofnunum og framkvæmd og kalla á verulegan mannafla og fjármuni á meðan aðildarviðræðum stendur. Í fundargerðinni kemur jafnframt fram að framgangur viðræðnanna sé metinn sérstaklega í hverjum samningskafla og að framfarir í aðlögun og innleiðingu séu forsenda þess að hægt sé að halda viðræðum áfram. Þetta mat fer fram á meðan viðræður standa yfir og er hluti af því verklagi sem gildir um opnun og lokun samningskafla. Þær kröfur sem settar eru fram lúta því ekki að lokaniðurstöðu viðræðnanna heldur að stöðu Íslands á hverju stigi ferlisins. Aðlögun og innleiðing eru þannig ekki atriði sem bíða lokasamnings heldur skilyrði fyrir því að viðræðurnar gangi yfirleitt áfram. Aðlögun er hluti af ferlinu Eins og áður hefur verið rakið ræðst lokun samningskafla af því hvort lagaleg og stjórnsýsluleg skilyrði hafi verið uppfyllt og framkvæmd þeirra sönnuð. Ekki nægir að lög séu samþykkt; jafnframt þarf að sýna fram á að þau virki í reynd og að viðeigandi stofnanir hafi getu til að framfylgja þeim. Af þessu leiðir að kröfur um uppbyggingu stofnana, lagalega aðlögun og framkvæmd regluverks eru hluti af viðræðuferlinu sjálfu. Fullyrðingar um að ekki þurfi að ráðast í breytingar á lögum eða stofnunum fyrr en að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu eiga ekki við rök að styðjast í ljósi þeirra krafna sem koma fram í fundargerðum viðræðnanna sjálfra. Skortur á dæmum um fullgerðar lagabreytingar, hið minnsta varðandi þessa kafla sem vikið er að hér að ofan, breytir ekki því að kröfur um aðlögun og innleiðingu voru settar fram sem skilyrði fyrir framvindu viðræðnanna. Það bendir fremur til þess að íslensk stjórnvöld hafi ekki orðið við slíkum kröfum, enda stöðvuðust viðræðurnar í upphafi árs 2013. Höfundur er hagfræðingur og í stjórn Heimssýnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Erna Bjarnadóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson Skoðun 48 manna stjórn – er þess virkilega þörf? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Getur maður dansað sig út úr depurð? Guðjón Ágústsson Skoðun Þarf að toga í fleiri þræði á leigumarkaði? Ragnar Sigurður Kristjánsson Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason Skoðun Macklemore, Robert Kraft og sniðganga fyrir Palestínu Ragnhildur Hólmgeirsdóttir Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson Skoðun Öryggi sjúklinga byggist á samstarfi og trausti Marta Jóns Hjördísardóttir,Ólöf Elsa Björnsdóttir Skoðun Þegar að náttúruvernd fer úr tísku Halla Hrund Logadóttir Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Skoðun Vefurinn kom á undan félaginu Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Macklemore, Robert Kraft og sniðganga fyrir Palestínu Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar Skoðun „Við ætlum að læra af þessu“ – enn einu sinni! Davíð Bergmann skrifar Skoðun Af hverju ég elska Ísland Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Hugleiðing á degi náttúrunnar Kolbrún Haraldsdóttir skrifar Skoðun Samfélag sem bregst EKKI og sérstakur dómstóll kynferðisbrota Aldís Schram,Anna Ragna Fossberg,Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Öryggi sjúklinga byggist á samstarfi og trausti Marta Jóns Hjördísardóttir,Ólöf Elsa Björnsdóttir skrifar Skoðun Björgunarþyrla á Akureyri – staða máls Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun Framtíð endurhæfingar á Norðurlandi Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Fær þjóðin eðlilega rentu? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þarf að toga í fleiri þræði á leigumarkaði? Ragnar Sigurður Kristjánsson skrifar Skoðun Getur maður dansað sig út úr depurð? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Vinnuvernd er líka sjálfsvígsforvörn Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Á allt Ísland heima á höfuðborgarsvæðinu? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Reykjanesundrið - næsti kafli Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekkert að spila um Sigurður Hallur Jónsson skrifar Skoðun HMS vill dýrari byggingar Eggert Guðmundsson skrifar Sjá meira
Öryggi sjúklinga byggist á samstarfi og trausti Marta Jóns Hjördísardóttir,Ólöf Elsa Björnsdóttir Skoðun
Skoðun Samfélag sem bregst EKKI og sérstakur dómstóll kynferðisbrota Aldís Schram,Anna Ragna Fossberg,Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Öryggi sjúklinga byggist á samstarfi og trausti Marta Jóns Hjördísardóttir,Ólöf Elsa Björnsdóttir skrifar
Öryggi sjúklinga byggist á samstarfi og trausti Marta Jóns Hjördísardóttir,Ólöf Elsa Björnsdóttir Skoðun