Sérðu táknmálið? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar 19. apríl 2026 10:01 Ég er heyrnarlaus, tilheyri táknmálssamfélaginu á Íslandi og skipa 10. sæti á lista Viðreisnar í Kópavogi í komandi kosningum. Það er ekki sjálfsagt. Þvert á móti er það mikilvægt skref í átt að aukinni fjölbreytni og raunverulegu jafnrétti í stjórnmálum. Viðreisn á hrós skilið fyrir að stíga þetta skref. Með því að bjóða einstakling úr táknmálssamfélaginu til þátttöku á framboðslista eru send skýr skilaboð: að raddir allra skipta máli og að samfélagið eigi að endurspeglast í þeim sem taka ákvarðanir.Íslenskt táknmál er jafnframt jafnrétthátt íslenskri tungu samkvæmt lögum nr. 61/2011 - en það þarf líka að endurspeglast í framkvæmd.,,Ekkert um okkur án okkar” - eru mikilvægustu skilaboðin í réttindabaráttu fatlaðs fólks og þessi skilaboð þurfa að heyrast skýrt. Fjölbreytni er ekki valkostur heldur nauðsyn Sveitarfélög eru ekki einsleit. Í Kópavogi býr fjölbreyttur hópur fólks með ólíkan bakgrunn, tungumál og þarfir. Þar á meðal er táknmálssamfélagið, hópur sem hefur lengi þurft að berjast fyrir sýnileika og aðgengi. Því vekur athygli að fáir, ef einhverjir, aðrir flokkar á sveitarstjórnarstiginu hafa sett táknmál á stefnuskrá sína eða tryggt þátttöku fólks úr táknmálssamfélaginu á sínum listum. Það er veikleiki í lýðræðinu. Ef við ætlum að tala um jafnræði verðum við að meina það í verki. Aðgengi að upplýsingum er grunnréttur Aðgengi að upplýsingum er ekki aukaatriði – það er forsenda þátttöku. Þegar upplýsingar eru ekki aðgengilegar á táknmáli er hópur fólks útilokaður frá lýðræðislegri umræðu og þjónustu. Táknmálið þarf að vera sýnilegt – í stjórnsýslu, í miðlun upplýsinga og í stefnumótun. Það er ekki nóg að tala um aðgengi. Það þarf að framkvæma það. Sterkara samfélag með fleiri sjónarhornum Þegar fjölbreytni fær að njóta sín í stjórnmálum verða ákvarðanir betri. Fleiri sjónarhorn leiða til víðari skilnings og réttlátari niðurstaðna. Það er ekki aðeins hagur táknmálssamfélagsins að eiga fulltrúa – það er hagur alls samfélagsins. Kópavogur hefur tækifæri til að vera leiðandi í aðgengi, jafnrétti og fjölbreytni. Það byrjar á því að tryggja að allir hópar hafi rödd við borðið. Táknmálið á að sjást.Táknmálið á að heyrast – á sínum forsendum. Höfundur er heyrnarlaus frumkvöðull, leiðsögumaður og skipar 10. sæti á lista Viðreisnar í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Táknmál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ísland, já takk Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad Skoðun Höggdeyfir fyrir hverja? Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Bollaleggingar Sigurður Kári Kristjánsson Skoðun Já-sjá leiðir til Já-já Guðmundur Edgarsson Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bandaríkin Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Bollaleggingar Sigurður Kári Kristjánsson skrifar Skoðun Höggdeyfir fyrir hverja? Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Ísland, já takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Já-sjá leiðir til Já-já Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar Skoðun Sameinumst undir regnboganum: Jafnrétti, inngilding og stolt Clara Ganslandt skrifar Skoðun Mikilvægasta Gleðigangan Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Sjöunda þversögn gervigreindar Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Sameiginlegur þekkingargrunnur að glatast? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Barátta intersex fólks standi styrkum fótum Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun JÁkvæður kvikmyndaframleiðandi Grímar Jónsson skrifar Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson skrifar Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Námsmat og einkunnir: Áskoranir og viðhorf Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hinir miklu alvitringar Baldur Vignir Karlsson skrifar Sjá meira
Ég er heyrnarlaus, tilheyri táknmálssamfélaginu á Íslandi og skipa 10. sæti á lista Viðreisnar í Kópavogi í komandi kosningum. Það er ekki sjálfsagt. Þvert á móti er það mikilvægt skref í átt að aukinni fjölbreytni og raunverulegu jafnrétti í stjórnmálum. Viðreisn á hrós skilið fyrir að stíga þetta skref. Með því að bjóða einstakling úr táknmálssamfélaginu til þátttöku á framboðslista eru send skýr skilaboð: að raddir allra skipta máli og að samfélagið eigi að endurspeglast í þeim sem taka ákvarðanir.Íslenskt táknmál er jafnframt jafnrétthátt íslenskri tungu samkvæmt lögum nr. 61/2011 - en það þarf líka að endurspeglast í framkvæmd.,,Ekkert um okkur án okkar” - eru mikilvægustu skilaboðin í réttindabaráttu fatlaðs fólks og þessi skilaboð þurfa að heyrast skýrt. Fjölbreytni er ekki valkostur heldur nauðsyn Sveitarfélög eru ekki einsleit. Í Kópavogi býr fjölbreyttur hópur fólks með ólíkan bakgrunn, tungumál og þarfir. Þar á meðal er táknmálssamfélagið, hópur sem hefur lengi þurft að berjast fyrir sýnileika og aðgengi. Því vekur athygli að fáir, ef einhverjir, aðrir flokkar á sveitarstjórnarstiginu hafa sett táknmál á stefnuskrá sína eða tryggt þátttöku fólks úr táknmálssamfélaginu á sínum listum. Það er veikleiki í lýðræðinu. Ef við ætlum að tala um jafnræði verðum við að meina það í verki. Aðgengi að upplýsingum er grunnréttur Aðgengi að upplýsingum er ekki aukaatriði – það er forsenda þátttöku. Þegar upplýsingar eru ekki aðgengilegar á táknmáli er hópur fólks útilokaður frá lýðræðislegri umræðu og þjónustu. Táknmálið þarf að vera sýnilegt – í stjórnsýslu, í miðlun upplýsinga og í stefnumótun. Það er ekki nóg að tala um aðgengi. Það þarf að framkvæma það. Sterkara samfélag með fleiri sjónarhornum Þegar fjölbreytni fær að njóta sín í stjórnmálum verða ákvarðanir betri. Fleiri sjónarhorn leiða til víðari skilnings og réttlátari niðurstaðna. Það er ekki aðeins hagur táknmálssamfélagsins að eiga fulltrúa – það er hagur alls samfélagsins. Kópavogur hefur tækifæri til að vera leiðandi í aðgengi, jafnrétti og fjölbreytni. Það byrjar á því að tryggja að allir hópar hafi rödd við borðið. Táknmálið á að sjást.Táknmálið á að heyrast – á sínum forsendum. Höfundur er heyrnarlaus frumkvöðull, leiðsögumaður og skipar 10. sæti á lista Viðreisnar í Kópavogi.
Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar
Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar
Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar