Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Birgir Olgeirsson skrifar 16. apríl 2026 18:38 Frá framkvæmdasvæðinu á Meitlum. Orkuveitan Orkuveitan telur sig nú hafa fundið nýtt og afar vænlegt jarðhitasvæði á Meitlum á Hellisheiði sem gæti skipt verulegu máli fyrir orkuöflun á höfuðborgarsvæðinu. Tvær borholur hafa gefið mjög lofandi niðurstöður og hitinn á svæðinu mælist um 275 gráður. Enn á þó eftir að staðfesta fundinn með frekari rannsóknum, meðal annars þriðju borholu, áður en hægt verður að fullyrða um hversu stór auðlindin er og hvernig best verði staðið að nýtingu hennar.
Málið gæti haft mikla þýðingu fyrir heitavatnsöflun inn á höfuðborgarsvæðið, ekki síst á köldum dögum þegar mikið reynir á kerfið. Orkuveitan rekur nú þegar Hellisheiðarvirkjun og Nesjavallavirkjun, þaðan sem stór hluti heita vatnsins til höfuðborgarsvæðisins kemur. Reynist auðlindin á Meitlum nýtanleg gæti hún styrkt þann grunn, dregið úr líkum á skerðingum og skapað meira svigrúm til frekari uppbyggingar og verðmætasköpunar. Sævar Freyr Þráinsson forstjóri Orkuveitunnar sagði í morgun að á næstu tólf árum yrði þörf á hita fyrir 110 þúsund íbúa og að auðlindin gæti jafnframt reynst verðmæt fyrir raforkuframleiðslu. Harpa Pétursdóttir, forstöðumaður nýrra orkukosta hjá Orkuveitunni, segir niðurstöðurnar mjög jákvæðar en leggur áherslu á að endanleg mynd liggi ekki enn fyrir. „Já, þetta eru ótrúlega jákvæðar fréttir og spennandi. Hér erum við búin að vera að bora síðastliðna mánuði og erum búin að fá upplýsingar um lofandi jarðhitaauðlind hérna undir. Þetta gæti þýtt bara nýja auðlind fyrir höfuðborgarsvæðið, fyrir samfélagið allt.“ Að hennar sögn er nú unnið úr gögnum úr holunum tveimur og þær látnar blása til að fá skýrari mynd af svæðinu. Fyrstu hugmyndir um umfang og nýtingu ættu að liggja fyrir um mitt ár. Þá verði betur hægt að meta hvort þar sé fyrst og fremst um að ræða varmaauðlind til húshitunar eða hvort svæðið geti einnig staðið undir raforkuframleiðslu. Sú sviðsmynd er ekki ósennileg, enda skilgreinir Orkustofnun háhitasvæði sem svæði þar sem hitastig ofan 1.000 metra dýpis er yfir 200 gráður og þar séu skilyrði til að reisa jarðhitavirkjanir sem framleiða rafmagn og gjarnan líka heitt vatn. „Það er erfitt að segja til um það akkúrat á þessari stundu, en við erum að vinna úr þeim gögnum sem búið er að afla. Þegar við erum komin með þetta allt saman í einhverjar niðurstöður getum við áttað okkur á því hvort við erum hér að tala um varmaauðlind til húshitunar eða hvort tveggja, rafmagnsframleiðslu og varmaframleiðslu. Það ætti að koma í ljós á næstunni.“ Stefnubreyting ýtti verkefninu af stað Þótt nú sé fyrst verið að tala opinberlega af meiri vissu um fundinn hefur svæðið lengi verið á ratsjá Orkuveitunnar. Sævar Freyr sagði í viðtali í morgun að undirbúningsrannsóknir hefðu staðið í um tíu ár, en að Orkuveitan hefði sett sér nýja stefnu fyrir tveimur árum og hafið markvissari rannsóknir og boranir í framhaldinu. Fyrirtækið stefnir jafnframt að mikilli sókn á þessu sviði og hefur þegar auglýst stórt borútboð með það markmið að rannsaka ný jarðhitasvæði og tryggja forða hitaveitunnar með allt að 35 nýjum rannsóknar- og vatnstökuholum fyrir lok árs 2028. Harpa segir því um tímamót að ræða fyrir fyrirtækið. „Þetta svæði hefur verið til skoðunar í áratugi jafnvel, en við höfum raunverulega ekki staðfest auðlindina fyrr en akkúrat núna. Og þess vegna getum við leyft okkur að segja núna með svona ágætlega óyggjandi hætti að hér sé eitthvað sem muni mögulega verða eitt af lykilsvæðum Orkuveitunnar til framtíðar.“ Sjálfstæði Íslendinga byggist á jarðhita Ásdís Benediktsdóttir, jarðvísindakona hjá rannsóknum og nýsköpun hjá Orkuveitunni, setur fundinn í stærra samhengi við allt Hengilssvæðið. Þar sé þegar nýting norðan megin á Nesjavöllum og sunnan megin á Hellisheiði, en nú sé verið að staðfesta að ný auðlind sunnar á svæðinu geti einnig reynst nýtanleg. „Við erum hérna stödd í Henglinum sem er eldfjall og fyrir norðan erum við að nýta Nesjavelli og hérna fyrir sunnan Hengilinn erum við að nýta Hellisheiði. Svo förum við hérna aðeins sunnar og þar er auðlind sem að var vitað og við erum núna að staðfesta að hún sé nýtanleg. Þetta er svo einstakt og við erum svo heppin Íslendingar að hafa þetta.“ Ásdís segir fundinn ekki aðeins skipta máli fyrir afhendingaröryggi heldur einnig fyrir sjálfstæði landsins í orkukerfinu. Að hennar mati talar nýting jarðhitans beint inn í viðnámsþrótt þjóðarinnar, sérstaklega á tímum þegar óvissa getur skapast á alþjóðlegum orkumörkuðum. „Þetta aðstoðar okkur raunverulega bara í að vera sjálfstæð með okkar orku og kallar beint inn í viðnámsþrótt Íslendinga. Sérstaklega á þessum tímum þar sem kannski skortir á olíu aftur eins og á 1970. Þannig að þetta raunverulega hjálpar okkur í að vera sjálfstæð og sjálfstæði Íslendinga byggist á jarðhita.“ Fundurinn fellur þannig beint að nýrri stefnu Orkuveitunnar um aukna orkuöflun til framtíðar. Ef frekari rannsóknir staðfesta það sem fyrstu holurnar benda til gætu Meitlarnir orðið nýtt lykilsvæði í jarðvarmanýtingu fyrir höfuðborgarsvæðið, bæði til að verja þau lífsgæði sem þegar eru fyrir hendi og til að skapa svigrúm fyrir frekari sókn.
Orkumál Jarðhiti Vatnsaflsvirkjanir Mest lesið Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Erlent Hótar tollum vegna skógareldanna Erlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Erlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Níræður maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Hæð langt suður í hafi dælir hlýju lofti til landsins Veður Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Fleiri fréttir Níræður maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Sjá meira