Hunsaður frá byrjun: „Þetta var bara frekar leiðinlegt og fúlt“ Sindri Sverrisson skrifar 18. apríl 2026 09:00 Oliver Heiðarsson skrifaði undir samning til þriggja ára við KA. ka Oliver Heiðarsson er mættur aftur í Bestu deildina í fótbolta, nú með KA, eftir erfiðan tíma í Króatíu í vetur, og ætlar sér stóra hluti með Akureyringum.
Oliver lék með FH og ÍBV í Bestu deildinni áður en hann gekk í raðir Lokomotiva Zagreb í vetur. Þar lenti hann hins vegar í frystkistu þjálfara sem leyfði honum aldrei að spila einn einasta leik. „Þetta var bara frekar leiðinlegt og fúlt. Maður reyndi að vera jákvæður fyrstu tvo mánuðina og svona. En síðustu vikurnar þá fór maður bara að pæla bara hvort maður væri ekki bara að eyða tíma með því að bíða og vona. Þannig að maður sá bara ekkert annað í spilinu heldur en að koma sér af stað svo maður gæti haldið áfram að þróast sem leikmaður og hafa gaman af íþróttinni,“ sagði Oliver við Vísi í vikunni eins og sjá má í spilaranum hér að neðan. „Ég spilaði náttúrulega bara ekki neitt. Ég fékk fullt traust frá stjórninni og allt það en á endanum þá treysti þjálfarinn mér ekki og sá mig allavega ekki fyrir sér í sínu liði. Þannig að á endanum var maður eiginlega bara að mæta á æfingar, vitandi það að maður væri ekkert að fara að spila neitt af viti. Maður reyndi sitt en eina skiptið sem maður náði að tala eitthvað við þjálfarann var einmitt þegar æfing var í gangi. Ég held að eina skiptið sem við spjölluðum eitthvað almennilega saman hafi verið þegar hann kynnti sig þegar ég mætti til klúbbsins í janúar,“ sagði Oliver sem fékk sem sagt engar almennilegar útskýringar á stöðunni. „Ég var ekki einn í þessum aðstæðum þannig að kannski er þetta bara kúltúrinn en þetta var ekkert það skemmtilegasta sem ég hef lent í. En svona er þetta stundum. Maður þarf bara að taka þetta á kassann, þetta fer í reynslubankann og maður verður bara að halda áfram.“ Eftir mikinn áhuga fjölda félaga í Bestu deildinni, þar á meðal frá sínum gömlu félögum FH og ÍBV en einnig frá Keflavík, Breiðabliki og Val, varð KA fyrir valinu hjá Oliver. Þangað eru einnig mættir menn á borð við Danijel Djuric og Svein Margeir Hauksson og ljóst að nóg er af sóknarþenkjandi gæðaleikmönnum í hópnum. Því fagnar Oliver: „Klárlega. Maður verður ekkert betri nema maður sé með smá pressu og samkeppni í eins mörgum stöðum og hægt er og ég segi að þetta sé bara jákvætt, að það sé erfitt að velja sóknarlínuna,“ sagði Oliver. Stefnuna sagði hann í fyrstu setta á Evrópusæti og að KA-liðið í ár væri sterkara en síðustu ár. „Þeir eru náttúrulega búnir að taka „forsetabikarinn“ [7. sæti] núna þrjú ár í röð og við erum klárlega með að mínu mati aðeins betra lið heldur en í fyrra. Þannig að við ættum að stefna ofar heldur en forsetabikarinn og við getum alveg klárlega gert það með liðið sem við höfum í dag.“
Besta deild karla KA Mest lesið Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Fótbolti Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Fleiri fréttir Bestu-deildarpar á von á barni saman Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Sjá meira