Af hverju eru sum hús full af lífi en önnur tóm? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar 17. apríl 2026 07:47 Við erum afskaplega dugleg að flokka samfélagsrými niður: þetta er fyrir börn, hitt fyrir ungmenni og svo enn annað fyrir eldra fólk. En samfélagið sjálft virkar ekki svona – og húsin okkar ættu ekki að gera það heldur. Á íslenskri tungu eru til mörg orð yfir þau rými þar sem samfélagið kemur saman: félagsheimili, félagsmiðstöðvar, samkomuhús, menningarhús, bókasöfn og fleira. Í grunninn er verið að tala um það sama – samfélagshús. Stað þar sem fólk mætist, dvelur og eru þátttakendur. Staður þar sem samfélagið iðar í hinu daglegu lífi. Samfélagshús er fyrst og fremst rými þar sem fólk tilheyrir, frekar en þjónusta sem það sækir. Þar mætast kynslóðir án þess að það þurfi að skipuleggja það sérstaklega, samtöl eiga sér stað og hlutverk haldast og myndast – oft án þess að nokkur hafi sett það á dagskrá. Þetta eru staðir þar sem fólk getur komið á án ákveðins erindis og fengið að upplifa tilfinningu um tengsl og tilgang í sínu nærsamfélagi. Til langs tíma hefur verið byggð upp ýmis konar öflug þjónusta í samfélagi okkar. Leik- og grunnskólar, íþróttamannvirki, verslun og þjónusta, og fjöldi annarra mikilvægra innviða. Á sama tíma höfum við síður hugað að rýmum þar sem lífið sjálft fær að eiga sér stað á milli kerfa, þar sem fólk á öllum aldri er ekki skilgreint sem notendur þjónustu, heldur sem þátttakendur í eigin samfélagi. Samfélagshús fylla það bil, á einfaldan en áhrifaríkan hátt. Slík rými skipta okkur öll máli en hafa sérstaka þýðingu fyrir þau sem standa á mörkum þess að detta út úr daglegu flæði samfélagsins. Fólk sem býr eitt, er ekki á vinnumarkaði, er í fæðingarorlofi, endurhæfingu, er nýflutt o.s.frv. Fólk sem þarf aðgengi að rými til að viðhalda tengslum eða tengjast upp á nýtt. Þar sem ungmenni fá öruggt rými til að þroskast, dafna og bara vera í, og þar sem eldra fólk heldur áfram að hafa hlutverk og viðhalda færni og sjálfstæði. Þar verður til samfella í lífinu, en ekki skörp skil á milli aldursskeiða. Ein glæsilegasta bygging þessarar hugsjónar er Oodi Helsinki Central Library í Finnlandi. Það kallast bókasafn en er í raun samfélagshús af stærstu gerð og hugsjón. Þar getur fólk úr öllum áttum og á öllum aldri komið, hist, unnið, skapað og bara verið til. Kjarni Oodi er ekki umfangið, heldur sú sýn að daglegt líf eigi að eiga sér stað þar sem aðgengi er einfalt og rýmið opið öllum. Hugmyndafræði Oodi er til víða og á fullt erindi, hvort sem er í stórum eða smærri samfélögum. Samfélagshús þarf ekki að vera stórt eða stór framkvæmd til að skipta máli. En það þarf að vera heildstætt. Þegar félagsstarf, viðburðir, vinnuaðstaða og dagleg samverurými eru sameinuð undir einu þaki verður til vettvangur sem styður við raunverulega þátttöku. Fólk þarf ekki að ferðast á milli margra mismunandi staða til að taka þátt, heldur hefur aðgang að því á einum og sama stað og hittist þrátt fyrir að vera í ólíkum verkefnum. Rannsóknir í öldrunarfræðum og skipulagsfræðum styðja þessa nálgun með skýrum hætti. Í nýrri nálgun World Health Organization er áherslan ekki lengur eingöngu á að fólk búi sem lengst heima, heldur á heilbrigða öldrun og uppbyggingu aldursvænna samfélaga. Þar er gengið út frá því að geta fólks til að lifa virku og merkingarbæru lífi ráðist ekki aðeins af heilsu þess, heldur af því umhverfi sem það býr í. Þátttaka byggist á því að aðstæður leyfi hana. Þegar samfélagsrými, þjónusta og daglegt líf eru innan seilingar eykst virkni, tengsl styrkjast og sjálfstæði viðhelst. Þegar aðgengi er takmarkað dregur hins vegar úr þátttöku, óháð vilja. Raunhæfir möguleikar til þátttöku ráðast þess vegna af því hversu aðgengilegt og nærri daglegu lífi umhverfið er. Í rannsókn V. H. Menec kemur fram að dagleg virkni og félagsleg þátttaka tengjast beint bættri heilsu og auknum lífsgæðum þegar fólk eldist. Þátttakan verður hins vegar að vera innan seilingar. Ef aðgengi er flókið eða fjarlægðir miklar dregur úr þátttöku, óháð vilja eða áhuga. Kenningar um samspil einstaklings og umhverfis, meðal annars þróaðar af M. Powell Lawton, sýna þetta mjög skýrt: þegar kröfur umhverfisins fara fram úr getu einstaklingsins minnkar þátttakan. Þetta snýst því ekki um persónulega ákvörðun, heldur hvernig samfélagið er hannað.Aðgengi, aðstaða, nálægð og einföld notkun skipta þar öllu máli og hafa því bein áhrif á það hvernig við hugsum samfélagshús. Bestur árangur næst þegar þjónusta, félagslíf og menning eru samþætt í einni byggingu (eða mögulega í einhvers konar þyrpingu), þar sem eldra fólk býr, og hún þannig úr garði gerð að aðgengi sé sem einfaldast. Fyrir mörg skiptir það sköpum að geta hreyft sig innan rýmisins á öruggan hátt og án óþarfa hindrana.Rannsóknir á kynslóðablöndun styðja þetta enn frekar. Fræðimenn á borð við Simon Biggs og Ariela Lowenstein hafa sýnt að merkingarbær samskipti milli kynslóða verða til í sameiginlegu rými þar sem fólk mætist reglulega. Slík tengsl verða ekki til með stökum viðburðum heldur með endurteknum og venjulegum samskiptum í daglegu lífi. Samfélagshús efla þátttöku og styrkja tengsl og sjálfstæði fólks á öllum aldri. Þau draga úr einmanaleika og geta spornað gegn því að einmanaleiki verði að vandamáli. Þau skapa rými þar sem fólk heldur áfram að eiga hlutverk í samfélaginu. Samfélög sem eiga ekki samfélagshús og/eða tryggja ekki einfalt aðgengi að þeim, veikja eigin grunn. Hvort sem byggð eru ný hús eða unnið markvisst með innviði sem þegar eru til, þá liggur hagkvæmnin í því að skapa aðstæður þar sem fólk getur tekið þátt í eigin samfélagi, á sínum forsendum Þar liggur hin raunveruleg fjárfesting – í heilsu, lífsgæðum og styrk samfélagsins til framtíðar. Höfundur er kynslóðablandari og tómstunda- og félagsmálafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rannveig Tenchi Ernudóttir Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar