Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ritstjórn skrifar 14. apríl 2026 15:52 Karlmaðurinn leiddur fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjavíkur í hádeginu. Vísir Karlmaður á fertugsaldri sem lögreglu grunar um umfangsmikið smygl fíkniefna með Dettifossi var síðast handtekinn af lögreglu í janúar grunaður um alvarlega líkamsárás á þorrablóti í Kópavogi. Lögregla réðst í húsleit á heimili hans á höfuðborgarsvæðinu í gær og lagði hald á fjölmarga muni í eigu hans. Alls voru sex handteknir og sæta þrír gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn á innflutningi á verulegu magni af sterkum fíkniefnum. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Tollgæslan stóðu fyrir viðamiklum aðgerðum í gær í þágu rannsóknar á umfangsmiklu fíkniefnamáli. Í kjölfarið voru þrír menn úrskurðaðir í gæsluvarðhald, tveir í gærkvöld og einn í dag. Alls voru sex menn handteknir í fyrrnefndum aðgerðum, en þremur var fljótlega sleppt úr haldi lögreglu. Málið varðar innflutning á verulegu magni af sterkum fíkniefnum. Samkvæmt heimildum fréttastofu er um að ræða smygl á fíkniefnum í vökvaformi til Íslands í gámi um borð í Dettifossi, gámaflutningaskipi Eimskips. Lögregla var með viðveru á lokuðu svæði Eimskips í Sundahöfn fyrri hluta dags í gær. Lögregla var með nokkurn viðbúnað á gámasvæði Eimskips fyrir hádegi í gær.Vísir/vilhelm Meðal hinna handteknu eru menn sem eiga sér nokkra sögu hjá lögreglu. Þrír hafa verið látnir lausir en lögregla ákvað að fara fram á gæsluvarðhald yfir þremur, tveimur í gær og svo einum í dag. Sá var leiddur fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjavíkur upp úr hádegi í dag þar sem dómari féllst á kröfu lögreglu um varðhald og einangrun í eina viku. Lögregla heldur þétt að sér spilunum við rannsókn málsins en samkvæmt heimildum fréttastofu réðst hún í húsleit í gær á heimili karlmannsins sem var úrskurðaður í gæsluvarðhald í dag. Um er að ræða einbýlishús þar sem samkvæmt heimildum fréttastofu var lagt hald á fjölda muna, allt frá reiðhjólum til armbandsúra. Lögregla hefur staðfest að málið sé til rannsóknar en hefur ekki viljað gefa upp eða staðfesta aðra þætti málsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu er um að ræða fíkniefni á vökvaformi en fréttastofa hefur ekki upplýsingar um magn eða tegund hinna meintu fíkniefna. Karlmaðurinn sem var settur í gæsluvarðhald í dag var handtekinn í lok janúar grunaður um að hafa slegið gest á þorrablóti HK í Kórnum í Kópavogi bylmingshöggi í höfuðið. Málið var rannsakað sem alvarleg líkamsárás og sætti karlmaðurinn gæsluvarðhaldi í tvo daga vegna rannsóknar lögreglu. Sá sem varð fyrir árásinni var liggjandi á sjúkrahúsi í um sjö vikur eftir árásina en um er að ræða þriggja barna föður á fimmtugsaldri. Hann hefur síðan verið í endurhæfingu. Fréttin var uppfærð klukkan 17:23 með tilkynningu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem sjá má í heild að neðan. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Tollgæslan stóðu fyrir viðamiklum aðgerðum í gær í þágu rannsóknar á umfangsmiklu fíkniefnamáli. Í kjölfarið voru þrír menn úrskurðaðir í gæsluvarðhald, tveir í gærkvöld og einn í dag. Alls voru sex menn handteknir í fyrrnefndum aðgerðum, en þremur var fljótlega sleppt úr haldi lögreglu. Málið varðar innflutning á verulegu magni af sterkum fíkniefnum. Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um rannsókn málsins að svo stöddu. Veistu meira um málið? Áttu myndir frá aðgerðum lögreglu? Sendu okkur fréttaskot nafnlaust eða undir nafni hér. Lögreglumál Fíkniefnabrot Tollgæslan Smygl Fíkniefnasmygl með Dettifossi Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Tollgæslan stóðu fyrir viðamiklum aðgerðum í gær í þágu rannsóknar á umfangsmiklu fíkniefnamáli. Í kjölfarið voru þrír menn úrskurðaðir í gæsluvarðhald, tveir í gærkvöld og einn í dag. Alls voru sex menn handteknir í fyrrnefndum aðgerðum, en þremur var fljótlega sleppt úr haldi lögreglu. Málið varðar innflutning á verulegu magni af sterkum fíkniefnum. Samkvæmt heimildum fréttastofu er um að ræða smygl á fíkniefnum í vökvaformi til Íslands í gámi um borð í Dettifossi, gámaflutningaskipi Eimskips. Lögregla var með viðveru á lokuðu svæði Eimskips í Sundahöfn fyrri hluta dags í gær. Lögregla var með nokkurn viðbúnað á gámasvæði Eimskips fyrir hádegi í gær.Vísir/vilhelm Meðal hinna handteknu eru menn sem eiga sér nokkra sögu hjá lögreglu. Þrír hafa verið látnir lausir en lögregla ákvað að fara fram á gæsluvarðhald yfir þremur, tveimur í gær og svo einum í dag. Sá var leiddur fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjavíkur upp úr hádegi í dag þar sem dómari féllst á kröfu lögreglu um varðhald og einangrun í eina viku. Lögregla heldur þétt að sér spilunum við rannsókn málsins en samkvæmt heimildum fréttastofu réðst hún í húsleit í gær á heimili karlmannsins sem var úrskurðaður í gæsluvarðhald í dag. Um er að ræða einbýlishús þar sem samkvæmt heimildum fréttastofu var lagt hald á fjölda muna, allt frá reiðhjólum til armbandsúra. Lögregla hefur staðfest að málið sé til rannsóknar en hefur ekki viljað gefa upp eða staðfesta aðra þætti málsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu er um að ræða fíkniefni á vökvaformi en fréttastofa hefur ekki upplýsingar um magn eða tegund hinna meintu fíkniefna. Karlmaðurinn sem var settur í gæsluvarðhald í dag var handtekinn í lok janúar grunaður um að hafa slegið gest á þorrablóti HK í Kórnum í Kópavogi bylmingshöggi í höfuðið. Málið var rannsakað sem alvarleg líkamsárás og sætti karlmaðurinn gæsluvarðhaldi í tvo daga vegna rannsóknar lögreglu. Sá sem varð fyrir árásinni var liggjandi á sjúkrahúsi í um sjö vikur eftir árásina en um er að ræða þriggja barna föður á fimmtugsaldri. Hann hefur síðan verið í endurhæfingu. Fréttin var uppfærð klukkan 17:23 með tilkynningu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem sjá má í heild að neðan. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Tollgæslan stóðu fyrir viðamiklum aðgerðum í gær í þágu rannsóknar á umfangsmiklu fíkniefnamáli. Í kjölfarið voru þrír menn úrskurðaðir í gæsluvarðhald, tveir í gærkvöld og einn í dag. Alls voru sex menn handteknir í fyrrnefndum aðgerðum, en þremur var fljótlega sleppt úr haldi lögreglu. Málið varðar innflutning á verulegu magni af sterkum fíkniefnum. Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um rannsókn málsins að svo stöddu. Veistu meira um málið? Áttu myndir frá aðgerðum lögreglu? Sendu okkur fréttaskot nafnlaust eða undir nafni hér.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Tollgæslan stóðu fyrir viðamiklum aðgerðum í gær í þágu rannsóknar á umfangsmiklu fíkniefnamáli. Í kjölfarið voru þrír menn úrskurðaðir í gæsluvarðhald, tveir í gærkvöld og einn í dag. Alls voru sex menn handteknir í fyrrnefndum aðgerðum, en þremur var fljótlega sleppt úr haldi lögreglu. Málið varðar innflutning á verulegu magni af sterkum fíkniefnum. Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um rannsókn málsins að svo stöddu.
Veistu meira um málið? Áttu myndir frá aðgerðum lögreglu? Sendu okkur fréttaskot nafnlaust eða undir nafni hér.
Lögreglumál Fíkniefnabrot Tollgæslan Smygl Fíkniefnasmygl með Dettifossi Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira